Atman

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Atman and the translation is 100% complete.
Other languages:

[Sanskrít „andardráttur“, „sjálf“, „sál“, „alheimssjálf“, „æðsti andi“] Í hindúasið, innri kjarni hvers einstaklings, hið ódauðlega sjálf, hinn íbúandi Guð, hið æðsta alheimssjálf, algjör vitund eins og Brahman. Ódauðlegur, ótortímanlegur kjarni mannsins.

Flestir vestrænir fræðimenn þýða „Atman“ sem sálin. Hins vegar ætti Atman í raun að þýða sem andi, „Guðs-sjálf“ eða „guðlegur neisti“. Þar sem Atman er eins og Brahman er ekki hægt að líta á hann sem sálina því sálin hefur samkvæmt skilgreiningu stigið niður í ríki hins afstæða góðs og ills en Atman tilheyrir samkvæmt skilgreiningu ríki hins algilda góðs.

Hindúakenningin er sú að Brahman sé Guð og að birtingarmynd þess Guðs búi innra með okkur sem Atman, sem er þrígreindur logi og hið heilaga Krists-sjálf.

Sjá einnig

Paramatman

Heimildir

Pearls of Wisdom, 35. bindi, nr. 8.

Elizabeth Clare Prophet, 29. júní 1992.

Elizabeth Clare Prophet, 28. júlí 1992.