Varmennið Belía

Belía," merkir varmenni í þýðingu íslensku Biblíunnar á hebreska orðinu bĕlīya'al. Það þýðir „ómerkilegur,“ hugtak sem notað er á víxl við nafn Satans. Reyndar er Satan nafn annars fallins engils hvers synir endurholdguðust á jörðinni eftir fall Lúsífers.
Í Gamla testamentinu er varmenni (belíal) venjulega túlkað sem algengt nafnorð sem þýðir einskis virði, guðleysi eða illska. (5. Mósebók 13:13; Dómarabók 19:22; 20:13; 1. Samúelsbók 2:12; 10:27; 25:17; 2. Samúelsbók 23:6; I. Konungabók 21:10, 13; II. Kroníkubók 13:7). Í 2. Korintubréf 6:15, er Varmenni (Belíal) notað sem réttnefni fyrir djöflaprins.
Varmenni er lýst í „Paradísarmissi“ eftir Milton sem einum af föllnu englunum.
Sjá einnig
Heimildir
Pearls of Wisdom, 14. bindi, nr. 5, 31.janúar, 1971.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lost Teachings of Jesus 4: Finding God Within