Orsakalíkaminn

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Causal body and the translation is 100% complete.
caption
Kortið af guðlega sjálfinu

Líkami fyrstu orsakarinnar; sjö sammiðja ljós- og vitundarhvel sem umlykja ÉG ER nærveruna á sviðum andans. Uppsafnaðir kraftar þessa sviða að viðbættu hinu góða sem sálin – með Guðs Orði og góðum verkum hefur birt í öllum fyrri lífum – eru aðgengilegir í hverri andrá eftir þörfum. Andleg auðlind manns og sköpunarkraftur – hæfileikar, náðargjafir og snilldargáfur, aflað með fyrirmyndarþjónustu á geislasviðunum sjö – má draga fram frá orsakalíkamanum með ákalli til ÉG ER nærverunnar í nafni Krists-sjálfsins.

Orsakalíkaminn er sá staður sem við „söfnum fjársjóðum á himni“[1]—forðabúr alls þess góða og fullkomna sem er hluti af okkar sönnu sjálfsmynd. Þar að auki eru hin stórkostlegu svið orsakalíkamans bústaðir hins hæsta Guðs sem Jesús vísaði til þegar hann sagði: „Í húsi föður míns eru margar vistarverur. ... að ég færi burt að búa yður stað?. ... ég kem aftur og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig [þar sem ég, hinn holdgerði Kristur, ER í ÉG ER nærverunni].“[2]

Orsakalíkaminn er híbýli, eða bústaður, anda ÉG ER SÁ SEM ÉG ER sem sálin snýr aftur til fyrir Krist Jesú og hið einstaklingsbundna Krists-sjálf sem á sér stað í helgisiði uppstigningarinnar. Orsakalíkaminn er stjarna hins einstaka Guðs-loga i hverjum manni með vísan til Páls postua þegar hann sagði: „því að stjarna ber af stjörnu í ljóma.“[3]

Sjá einnig

Kort af guðlega sjálfinu

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Matt. 6:19–21.
  2. Jóhannes 14:2, 3.
  3. I Cor. 15:41.