Krists-sjálfið

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Christ Self and the translation is 100% complete.

Einstaklingsbundin birting „Orðsins [sem] varð hold, hans [sem] bjó með oss, fullur náðar og sannleika.“[1] Alheims- Kristur einstaklingsbundinn sem hin sanna sjálfsmynd sálarinnar; hið sanna sjálf sérhvers manns, konu og barns sem sálin verður að leitast til að verða. Krists-sjálfið er meðalgangari á milli manns og Guðs. Hann er einkakennari, meistari og spámaður mannsins sem þjónar sem æðsti prestur fyrir altari hins allra helgasta (ÉG ER-nærverunnar) í musteri sérhvers manns sem gert er án handa.

Tilkoma hinnar alhliða vitundarvakningar um Krists-sjálfið hjá lýð Guðs á jörðu er spáð fyrir um af spámönnunum sem niðurkoma DROTTINS RÉTTLÆTIS OKKAR,[2] einnig kallaður SPROTI,[3] á komandi tímum. Þegar maður nær fyllingu sálar-samsömunar við Krists-sjálfið er hann kallaður Kristur endurborinn, eða smurður, og sonur Guðs sést skína í gegnum mannssoninn.

Sjá einnig

Kristur

Heimildir

Hartmann Bragason, Austurlenskar rætur kristninnar. Upprunalegar kenningar frumkristninnar og guðfræði nýja tímans. Reykjavík, Bræðralagsútgáfan, 2022, Orðalisti, bls. 257.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Jóh 1:14.
  2. Jer 23:5, 6; 33:15, 16.
  3. Jes 11:1; Sak 3:8; 6:12.