Ljósvakasviðið
Æðsta sviðið í efnisvíddinni; svið sem er eins áþreifanlegt og raunverulegt og efnissviðið (jafnvel rauverulegra), en upplifunin á sér stað með skynfærum sálarinnar í vídd og verund handan efnisvitundarinnar. Sviðið þar sem akasha-annálar allrar mannkynsþróunarinnar er skráð á einstaklings- og heildarvísu.
Það er heimur uppstignu meistaranna og athvörf þeirra, ljósvakaborgir þar sem sálir á æðra þroskastigi dvelja á milli endurfæðinga. Það er raunveruleikasviðið, laust við allan saurleika, syndir/sjúkleika samfélaga sem menn og djöflar hafa búið til á jörðinni. Hér er gullöldin í algleymingi, fylling kærleikans vottar nærveru Guðs alls staðar og englar og náttúruvættir ásamt börnum Guðs þjóna í sátt og samlyndi við að birta ríki Krists í hinum algera heimi, heim án takmarkana. Þar eiga sér stað umskipti á milli hjarðneska og himnasviðsins annars vegar og ríkis Guðs hins vegar, andans, eða hins algera.
Lægra ljósvakasviðið skarast við gerðræna-/hugræna/efnissviðið. Það er mengað af þessum lægri heimum sem hið falska helgival hefur hernumið og múgvitundin sem það stjórnar, þar með talið geðs-hræringar múgvitundarinnar (e-motions, “energies in motion”).
Til frekari upplýsinga
Elizabeth Clare Prophet, “On Dealing with Death, Discarnates and Malevolent Spirits, III. hluti“ (hljóð- og myndbandsupptaka).
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.