Illskan

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Evil and the translation is 100% complete.

Orkuhula; blæja smisbeittrar orku sem maðurinn breiðir yfir efnið með misnotkun sinni á hinum helga eldi; maya, tálsýn, blekking.

Illska skrifuð með hástaf vísar til algerrar illsku sem andstæðu hins algera góða. illska með litlum staf vísar til afstæðs gildis góðs og ills, daglegt ris og hnig mannlegra mistaka sem hægt er að umbreyta með krafti hins algera góða-Guði.

Hið algera illa holdi klætt er ásigkomulag fallinna engla sem lýstu yfir stríði gegn almáttugum Guði, Kristi hans og afkvæmum hans í uppreisninni miklu. Þeir hafa ekki látið af skærum sínum gegn niðjum hinnar guðlegu móður. Þeir munu ekki lúta ljósinu og verða sigraðir í Harmageddon með dómi Drottins og hersveitum hans – sveitum hins algjöra góða sem auðkennir Guð á himni og jörðu.

Meðvitundin um afstætt gildi góðs og ills sem felst í lífsstraumum sem synda gegn straumi Guðs-viljans. Það er afleiðing tilrauna sálna á frjálsum vilja sem völdu að lækka vitund sína niður fyrir stig og orkutíðni Krists-hugarins.

Sem afleiðing af sigri ljóssins yfir myrkrinu geta sálir sem hafa glatað paradísarsælunni frelsast frá öllu illu og hinum illa með því að velja af frjálsum vilja í Kristi að snúa aftur til ríkis hans undir lögmáli Guðs.

Sjá einnig

Orkuhula

Frekari upplýsingar

Elizabeth Clare Prophet, Fallen Angels and the Origins of Evil.

Elizabeth Clare Prophet, Kabbalah: Key to Your Inner Power.

Archangel Gabriel, Mysteries of the Holy Grail.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Pearls of Wisdom, 30. bindi, nr. 11.