Stóra hvíta bræðralagið

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Great White Brotherhood and the translation is 100% complete.

Andleg skipan vestrænna dýrlinga og austurlenskra fullnuma sem hafa sameinast á ný anda hins lifanda Guðs; regla hinna himnesku herskara himnanna. Þeir hafa hafið sig upp yfir hringrás karma og endurfæðinga og stigið upp (hraðað eða hækkað vitundarstig sitt) til æðri veruleika sem er eilífur dvalarstaður sálarinnar. Orðið „hvítur“ vísar ekki til kynþáttar heldur til áru (geislabaugs) hvíts ljóss sem umlykur þá.

Uppstignir meistarar hins Stóra hvíta bræðralags, sameinaðir í æðsta tilgangi bræðralags mannsins undir föðurlegum verndarvængi Guðs. Þeir hafa komið fram á öllum tímum í öllum siðmenningum og trúarbrögðum og hafa blásið mönnum byr í brjóst hvatningu til skapandi árangurs í menntun, listum og vísindum, guðlegum stjórnarháttum og til velsældar í efnahagslífi þjóðanna. Bræðralagið hefur einnig innan sinna raða ákveðna óuppstigna chela-nema hinna uppstignu meistara. Jesús Kristur opinberaði þjóni sínum Jóhannesi hinum elskaða þessa himnesku skipan heilagra „skrýddum hvítum skikkjum“ í Opinberunarbókinni.[1]

Markmið

Meginhlutverk Hvíta bræðralagsins er að vekja mannkynið til vitundar og skilnings um það frelsi sem felst í einingu við alheiminn – hinum óskeikulu lögmálum sem stjórna hringrásum og örlögum örheimsins (mannsins) og stórheimsins (hins sanna ljósheimilis).

Stofnsetning

Hugmyndin um Bræðralagið fæddist í huga Guðs í gegnum alheims Krists-vitundina sem er Logos, hið hreina ljós hins mikla hvíta vegs. Guð faðir gat ekki horft upp á hið illa né ranglæti en fyrir Krist var hann í snertingu við allar aðstæður í alheiminum. Krists-vitið gæddi hugmynd föðurins áþreifanlegum veruleika hins Stóra hvíta bræðralags. Þannig urðu til hin óaðfinnanlegu klæði hinnar almennu Krists-vitundar.

Bræðralagið er von hvers manns. Það er áætlun Guðs um skipulega tjáningu kærleika hans. Það er ráðstöfun hans til að hefja einstaklinginn til vegs með því að hefja upp heildina og öfugt. Það er áhrifarík leið þar sem Guð leggur sig fram í kyrrþey til að framkvæma undur sín og kraftaverk til frelsunar og hjálpræðis í heimi sem hefur vikið af vegi réttlætisins.

Þótt það sé andlegt að uppruna heldur Hvíta bræðralagið mjög raunverulegu sambandi við jarðarbúa samtímans. Æðri innvígðir eru alveg meðvitaðir um snertingu sína við bræðralagið en lægri innvígðir vinna og þjóna án nokkurrar vitundar um sambandið. Hið Stóra hvíta bræðralag starfar einnig á öðrum plánetum og í öðrum heimskerfum.

Félagsaðild

Félagsmenn þessa andlega bræðralags eru fulltrúar guðdómsins eins og ljósgeislar sem skína frá sólinni. Hver og einn ber hluta vitundar skaparans og raungerir hana fyrir jarðneskum sálum. Félagsmönnum er óheimilt að upplýsa um aðild sína — jafnvel öðrum félögum. Þeir mega þó gangast við þjónustu sinni undir stjórn meistara hins Stóra hvíta bræðralags.

Einn af þekktustu félögum Hvíta bræðralagsins er hinn uppstigni meistari Jesús Kristur en þjónusta hans í Galíleu var stórkostleg birting og uppfylling aldagamals stórundirbúnings og árþúsundagamals guðlegs ásetnings. Æðri vígslumenn bræðralagsins eru þekktir sem „logadrottnar“.

Starfsemi Bræðralagsins

Sérhver uppstiginn meistari tilheyrir Hinu Stóra hvíta bræðralagi og þeir sem þrá að sameinast þessu bræðralagi verða að stefna að því að öðlast Krists-vitund. Það er ekki hægt að afhjúpa öll hin mýmörgu hlutverk bræðralagsins og leitast við að aðstoða mannkynið og vernda mannkynið gegn sjálfu sér á margvíslegan hátt. Það er umboðsaðili Guðs á jörðu og þótt það hafi verið mikið rægt og misskilið heldur það áfram störfum uns sérhver einstaklingur á þessari jörð öðlast náttúrulegt guðlegt frelsi sitt. Við skulum hins vegar kynna hin helgu markmið sem yfirmaður Darjeeling ráðs hins Stóra hvíta bræðralags hefur sett fram.

Í upphafi ársins 1968 gaf ástkær El Morya út leiðbeiningar í fimmtán skrefum sem ráð Bræðralagsins hafði ákveðið að birta mannkyninu á því ári. Þessi atriði draga saman aldagömul markmið Bræðralagsins og því tökum við þau hér með til þess að þeir sem vilja leggja hendur sínar þéttingsfast í hendur hinna hvítklæddu bræðra geti skilið sérstaklega hvað þeir geta gert til að efla hina guðlegu áætlun fyrir jörðina og kalla fram þá aðstoð sem himneskar hersveitir telja mikilvægasta á þessari stundu til að uppfylla heimsins þarfir.

El Morya skrifar:

Hver getur afneitað aðkallandi þörfum mannkynsins? Hver skyldi geta það? Það er einlæg ósk okkar að veita mannkyninu eftirfarandi aðstoð, hverjum fyrir sig og sameiginlega, eftir getu hvers til að bregðast við þjónustu himneskra hersveita:

1. að þjóna einstaklingnum betur til að veita skilningssljóum skarpari skilning;

2. að setja fram á æskilegastan hátt æðri kenningar alheimslögmálsins fyrir þá sem geta skilið þær;

3. að skapa stöðugri tengsl við helgivaldið með kosmískum útvörðum okkar í mannheimum;

4. að innleiða á æðri stigum aukna ráðvendni, réttlæti og trú á stjórnvöldum og viðskiptum og í trúarlegri, vísindalegri og listrænni viðleitni;

5. að aðstoða þá sem lítið hafa séð eða upplifað af himnaríki með því að efla mátt manna til guðlegrar sýnar;

6. að þroska andlegt eðli alls fólks til þess að það megi upplifa meiri gleði við að framfylgja vilja Guðs hvar og hvenær sem það er kallað til að þjóna;

7. að halda við trúnni hjá þeim sem enn verða að gangast við henni;

8. að mæta andlegum þörfum mannkyns á öllum vitundarstigum;

9. að stuðla að friði og skilningi til að flýta fyrir birtingu kosmískra markmiða;

10. að nýta endurnýjaðan áhuga á dulrænum skynjunum og málefnum andans til að beina leitandanum í átt að framvindu hins dulda guðdóms frekar en að sækjast eftir mögnuðum upplifunum.

11. að útskýra frekar fyrir mannkyninu hina stórfenglegu sögu hins kosmíska helgivalds;

12. að birgja sig upp af varaorku sem forðabúri andlegs krafts sem lærisveinar og lærisveinkur uppstignu meistaranna geta hagnýtt sér í þjónustu sinni við mannkynið og til blessunar alls lífs beint frá athvörfum uppstignu meistaranna;

13. að tryggja nýjar ívilnanir frá Karmíska ráðinu til endurnýjunar þessara orkulinda og til endurnæringar jarðneskra einstaklinga með nægilegum krafti og kosmískri þekkingu til að útfæra áætlun ársins;

14. að hvetja alla, jafnvel þá sem eru undirokaðir, til að viðhalda trú sinni á hinni hinstu dýrð Guðs á sama tíma og þeir skynja algera nauðsyn þess að vinna gegn fávísri framgöngu mannkyns í óhóflegri efnishyggju sinni, neyslu ofskynjunarlyfja, ósamrýmdri og ósamhljóða tónlist og öðrum ámóta listformum, og gegn fánýtri og skaðlegri nautnahyggju;

15. að gera manninn heilan í samræmi við hina upprunalegu guðlegu áætlun.[2]

The Summit Lighthouse

Summit Lighthouse (Ljós-/vitinn á tindinum) fær umboð sitt frá Stóra hvíta bræðralaginu og nýtur bakstuðnings þess. Svo framarlega sem það heldur uppi kenningum þessa bræðralags eftir bestu getu mun bræðralagið, á þessari öld og vonandi um ókomna tíð, nota arm hreyfingarinnar til að halda uppi kyndli uppljómunar fyrir mannkyninu.

Sjá einnig

Kosmískt helgivald

Til frekari upplýsinga

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, 4. kafli, “The Great White Brotherhood”.

Elizabeth Clare Prophet, The Great White Brotherhood in the Culture, History and Religion of America.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, 4. kafli, “The Great White Brotherhood.”

  1. Opinb. 3:4, 5; 6:9–11; 7:9, 13, 14; 19:14.
  2. El Morya, Pearls of Wisdom, 11. bindi, nr. 1.