Jaspis
Jaspis er ógegnsætt kvars í mörgum litum með kristalbyggingu sem er svo fín að engar aðgreindar agnir sjást í smásjá.
Nýja Jerúsalem
Í Opinberunarbókinni er rætt um jaspis í tengslum við Hina nýju Jerúsalem. Jóhannes postuli segir svo frá þeirri borg:
Og hann flutti mig í anda upp á mikið og hátt fjall og sýndi mér borgina helgu, Jerúsalem, sem niður steig af himni frá Guði.[1]
Það sem er undraverðast við þessa sýn er að hún stígur niður. Með öðrum orðum, Jóhannes sér að það er fullkomlega unnt að sameina anda og efni; að við eigum ekki að vera aðskilin að eilífu sem himinn og jörð, eins og í veruleikaheimi tvíhyggjunnat. Tvíhyggja er annað en skautun: skautun þýðir að alls staðar verða að vera hinir tveir kraftar Alfa og Ómega að verki; tvíhyggja merkir aðskilnað, þar sem lífið er alltaf séð í tvennu lagi, en í raun afmáist tvíhyggjan fyrir nærveru Guðs.
Ljómi hennar var líkur dýrasta steini, sem jaspissteinn kristalskær.[2]
Þessi tiltekna setning er gefin sem alkemísk íhugun. Ráðlagt er að þú finnir mynd af jaspis, finnir hver alkemísk formúla hans er, hafir þá formúlu skrifaða á blað fyrir framan þig, gangir að altarinu í rannsóknarstofu þinni — þeim stað þar sem þú breytir (alter) orku bæði í anda og efni — og að þú gerist æðstiprestur og vísindamaður um leið og þú sameinast þínum eigin Krists-huga. Þú hugleiðir steininn, kristalinn, hina alkemísku formúlu hans, og lætur Guð gefa þér hið hagnýta svar um hvað skuli gera til að leysa borgarleg vandamál okkar. Það er þarna sem svörin liggja. Svörin er að finna í uppbyggingu sameinda og frumeinda.
Og þannig er hin helga borg, borin þar sem hinn nýi himninn stígur niður til samruna við hina nýju efnismyndun og til uppfyllingar á boðuninni sem Jesús gaf okkur í Faðirvorinu: „til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ Sú fullyrðing gefur okkur heildarmarkmið lífs okkar: að tilgangurinn með því að vera á jörðinni sé að láta það sem er í anda birtast í efni.
Jaspis er einnig lýst sem einum af grundvallarsteinum hinnar nýju Jerúsalem:
Og borgin er ferhyrnd, og lengd hennar er jafn mikil og breidd hennar. Og hann mældi borgina með reyrstönginni, tólf þúsund faðmar. Lengd hennar, breidd og hæð eru jöfn.
Og hann mældi múr hennar, hundrað fjörutíu og fjögur alin, eftir manns mæli, sem er engils mælir.
Múrinn var byggður af jaspis, en borgin var af skíru gulli, lík hreinu gleri.
Grundvellir borgarmúrsins voru prýddar hvers kyns dýrum steinum. Fyrsti grundvöllurinn var jaspis, annar safír, hin þriðji kalsedón, hinn fjórði smaragður.
Hinn fimmti sardonix, hinn sjötti sardissteinn, hinn sjöundi krýsólít, hinn áttundi berýl, hinn níundi tópas, hinn tíundi krýsópras, hinn ellefti hýasint, hinn tólfti ametýst.
Og hliðin tólf voru tólf perlur, hvert hlið úr einni perlu. Og stræti borgarinnar var af skíru gulli, sem gegnsætt gler.[3]
Þetta eru vitundarsvið innan orsakalíkamans — þau eru öll táknræn, og þó eru þau öll að verða raunveruleg í fyllingu tíma og rúms.
Tákn uppljómunarinnar
Fjórði kafli Opinberunarbókarinnar líkir einnig ljómanum af þeim sem situr í hásætinu á himnum við jaspis:
Jafnskjótt var ég hrifinn í anda. Og sjá: Hásæti stóð á himni og einhver sat í hásætinu.
Sá, er þar sat, sýndist líkur jaspissteini og sardissteini og regnbogi var kringum hásætið á að sjá sem smaragður.[4]
.
Sanat Kumara útskýrir merkingu þessarar sýnar:
Ljós jaspissins er hið gullna ljós lífsins kórónu fyrir þann sem opnar dyr hvirfilorkustöðvarinnar. ÉG ER að opna þær dyr innra með þér, og ÉG ER þær opnu dyr sem enginn maður fær lokað. ÉG ER að opna dyr hringrásanna sem stafa frá hinum miklu sólarhringum hins bláa orsakalíkama hins Mikla guðlega stjórnanda....
ÉG ER hið gullna ljós Guðs-hugans, jaspisinn sem er til uppbyggingar múrveggja hinnar ferhyrndu borgar og til prýðis hins fyrsta grundvallar. Uppljómun er grundvöllurinn við byggingu musterisins á öld vatnsberans. Þannig er jaspisinn einnig sigursteinn, sá tólfti, greyptur í gull á brjóstskjöld Arons til dómsfellingar.<ref>Elizabeth Clare Prophet, The Opening of the Seventh Seal: Sanat Kumara on the Path of the Ruby Ray, 3. kafli.
Heimildir
Pearls of Wisdom, 49. bindi, nr. 23, 8. júní 2006.
Elizabeth Clare Prophet, 9. október 1977.
Elizabeth Clare Prophet, 8. mars 1978.