Neptúnus og Lúara

Neptúnus og Lúara eru yfirstjórnendur frumþáttar vatnsins á þessari plánetu [sem er einn af höfuðskepnunum fjórum en hinir eru jörð, loft og ljósvakaefni]. Neptúnus og Lúara hafa umsjón með frumþættin vatnsins og jafnvægi lífsins í honum, ásamt vatnadísum (undínum) sem eru (náttúruvættir frumþáttar vatnsins) sem þeir stjórna, stýra sjávarföllum og vötnum undir sjónum, úrkomu yfir jarðlendi og hreinsun vatns hvar sem það finnst — jafnvel í mannslíkamanum.
Þjónusta þeirra
Neptúnus og Lúara þjóna með tólf helgiveldum sólarinnar í krabba, ljóni og meyju til að kenna mannkyninu að ná tökum á geðlíkamanum. Þau kenna einnig að ná tökum á vatnsþættinum í efnis- og ljósvakalíkamanum og jafnvægi þrígreinda logans í gegnum þann þátt undir helgiveldum fiskanna, krabbans og sporðdrekans.
Neptúnus ber þrífork sem tákn um hinn þrígreinda loga og vald sitt yfir virkni Krists-vitundarinnar sem stjórnar vatnsfrumþættinum í gegnum þessi þrjú stigveldi (2, 6, 10) sólarinnar. Áhrif tunglsins á geðlíkama jarðarþróunar eru afbökun á starfsemi Lúara, en hún sem kvenkyns fulltrúi vatnsfrumþáttarins kennir okkur að ná tökum á geðlíkamanum.
Vatnadísir

Vatnadísirnar lifa hvar sem vatn er að finna, stundum birtast þær í líki hafmeyjar. Þær auka hreinleika og flæði ljóss Guðs í vötnunum. Þar sem meira en tveir þriðju hlutar af yfirborði jarðar eru þaktir vatni eru vatnadísirnar mjög önnum kafnar. Kúthúmi talar um þjónustu þeirra:
Engu að síður heldur alvöruþrungið starf vatnadísanna áfram þar sem höfin og árnar og vötnin, straumarnir, lækirnir og lækjarsprænurnar og regndroparnir eiga öll þátt í myndun og endurmyndun líkama plánetunnar okkar og mannsins en það er algjörlega undirorpið náttúruvættunum.
Vatnadísirnar, sem einnig hlæja og leika sér í öldunum og fossunum, fylgja ástúðlega fordæmi yfirstjórnanda síns. Neptúnus er konungur djúpsins og maki hans, Lúara, er móðir sjávarfallanna, stjórnar hringrásum frjósemis og vatnsfrumþáttarins þar sem hann hefur áhrif á geðlíkamann (þekktur sem vatns-, löngunar- eða geðlíkaminn) og samskipti mannskynsins og geðbrigði á borð við gleði, sorg, sektarkennd, reiði og ást í gegnum geðsviðið sem hefur sterk áhrif á sameiginlega undirvitund kynstofnsins.[1]
Frelsun vatnadísanna
Það er mikilvægt að mannkynið biðji fyrir vatnadísunum og segi þeim hversu þakklát við erum fyrir stórkostleg verk þeirra — og hvetji þær til að halda áfram án afláts. Kallið á Saint Germain og englasveitir fjólubláa logans til að umbreyta sameiginlegri undirvitund mannkynsins og öllum myrkraverkum, sjúkdómum og dauða sem saurgar geðlíkama mannkynsins og vötn jarðar. Biðjið um endurreisn náttúrulegs eldmóðsflæðis andans til sjávar til að létta þunganum af geðsviðinu sem vatnadísirnar bera. Við verðum einnig að biðja fyrir vernd hinna dýrmætu hvala svo þeir geti haldið áfram að senda ljós og geisla úr geimnum til alls lífs á jörðinni.
Biðjið fyrir umbreytingu allrar mengunar í vötnum jarðar. Fjólublái loginn getur endurheimt jafnvægi í vistkerfum áa og vatna sem geta ekki lengur stutt fulla líffræðilega fjölbreytni og endurbæta skaða á skógum af völdum súrs regns. Kallið sérstaklega eftir hreinsun drykkjarvatns jarðar til að viðhalda jafnvægi vatnfrumþáttarins í líkama mannkynsins.
Mikilvægi sjávarins
Neptúnus og Lúara hafa rætt um mikilvægi hafsins:
Hafið er þar sem lífið getur af sér líf. Hafið er móðurkviður Alheims-meyjarinnar, rétt eins og það er gröfin þar sem dulrúnir sameiginlegrar undirvitundar þróunarkeðju jarðarinnar eru skráðar og endurskráðar til umbreytingar alls lífs. Hafið birtir þrá Guðs-móðurinnar til að fæða börn Guðs og það ber með sér æðstu og lægstu langanir mannkynsins til að fæða guðdóminn og and-guðdóminn [í heiminn], alheims sátt og samlyndi eða andstæðu þess.
Höfin sjö tákna þrá mannsins eftir heilleika á hinum sjö sviðum tilverunnar. Það stendur fyrir sjö liti, tóna og orkutíðni hinna sjö sköpunardaga. Höfin innihalda grunnþátt og grunnþáttarleysi — mótaða og ómótaða frumþætti lífsins. Höfin og vatnasvæðin sem prýða jörðina með gimsteinum af jökulbláum, blágrænum og dásamlegum safírlitbrigðum eru í raun til í sjö lagaskiptum sviðum sem samsvara hinum sjö líkömum mannsins.
Náttúruvættir ljóssins og englaþjónar eru beinar fyrir samverkun þessara „sjö hafa“ við hinn helga eld hinna sjö starfstækja vitundar mannsins. Flestir á áttundarsviði þínu taka aðeins eftir efnislíkama mannsins og því taka þeir einnig aðeins eftir efnissviði hafsins.
Jóhannes hinn ástkæri sá „glerhafið, líkt kristalli“ fyrir framan hásæti Hins aldna og aftur „glerhafið eldi blandið.“[2] Þannig er samverkunin á helgum eldi og rennandi vatni í hinni Miklu megisól alltaf lífgefandi hræring Alfa og Ómega í hjarta hinnar logandi lífeindar, en nærveru hennar birtist í þér sem ÉG ER SÁ SEM ÉG ER.
Þannig losa faðir og móðir, sem alltaf geta líf, kristalstrenginn sem keðju úr kristalljósi. Þessi keðja, eins og voldugur Hemesarstafur sem spannar úthaf alheimsins, er uppbygging sem stígur upp/niður og verður yfirbygging andlegra og líkamlegra starfstækja allra þátta lífsins.[3]
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Neptune and Luara.”
- ↑ Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, bls. 375.
- ↑ Opinb 15:2.
- ↑ Neptune and Luara, “Cosmic Cooperation between the Children of the Sun and Elemental Life IV” („Alheimssamstarf milli barna sólarinnar og höfuðskepnanna IV“), Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 17, 27. apríl 1980.