Translations:Abraham/23/is
Þrátt fyrir endurtekin loforð Drottins um að niðjar Abrahams yrðu óteljandi var Sara enn ófrjó eftir tíu ár í Kanaan. Hún lagði til, eftir þeirra tíma hætti, að Abraham myndi feðra barn með Hagar ambátt sinni. Hagar fæddi þá Abraham son, Ísmael. Þrettán árum síðar þegar Abraham var 99 og Sara 90, opinberaði Drottinn sig ættföðurnum sem El Shaddai, „hinn almáttugi Guð.“ Drottinn stofnaði ævarandi sáttmála við Abraham um að vera honum Guð og afkomendum hans.