Translations:Discipleship/3/is

From TSL Encyclopedia

(2) Lærisveinn (chela-nemi): Einstaklingurinn þráir að stofna til tengsla við meistarann — fá beina kennslu frá meistaranum frekar en í gegnum útgefin skrif hans eingöngu. Lærisveinninn svarar kalli meistarans um að yfirgefa net sín af karmískum flækjum og veraldlegri þrá og fylgja honum: „Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.“[1] Lærisveinninn meðtekur vígslur hins kosmíska Krists í þjónustu sinni við meistarann. Hjarta hans, hugur og sál eru farin að kunna betur að meta og sýna meiri kærleika sem þakklæti fyrir kennsluna sem hann fékk á fyrra námsstigi. Þessi kærleikur er sýndur í verki sem fórnfýsi, ósérhlífni, þjónusta og afsal í hendur Persónu Krists, sólina á bak við Mannsson meistarans; þegar þessu skrefi hefur náð örvun að stigi „þóknanlegrar fórnar“ og chela-neminn er orðinn iðinn við að jafna þrígreindan loga sinn og karma, gæti komið til greina fyrir hann að taka næsta skref.

  1. Matt 4:19; Mark 1:17.