Translations:Great Divine Director/13/is
Guðleg leiðsögn er vitundarástand í Guði. Það er fullkomin vitund um fyrirætlun hans fyrir allt líf. Að endingu inniheldur þessi vitund í sjálfri sér ekki aðeins stefnuna heldur rökrétta niðurstöðu hennar í aðgerðauppfyllingu. Fyrir löngu, áður en sálir okkar áttuðu sig á guðlegri ímynd sinni, skynjaði vígsluþegi drottna sólarinnar þörf lífsbylgna hér að neðan fyrir því að þekkja fyrirætlunina og halda áfram vegferð sína með óskeikulum leiðbeiningum frá Pólstjörnu verundarinnar til að fylla upp í frumdrætti ráðagerðarinnar, eftir því sem hugsunin mótaðist, eftir því sem hvati og vilji safnaði í sig kröftum til lúkningar, sem efnis-birting, líkamleg uppfylling, að fullnusta hringrásinni. Nafn hans varð líka aukaatriði miðað við logann sem hann dýrkaði.