Translations:Karma/59/is
Gjaldfallið karma gefur okkur dýrðlegt tækifæri til að verða frjáls, óháð, óeigingjörn og átta sig á afleiðingum orsaka sem við höfum stofnað til. Það er algjörlega eðlilegt og réttmætt að við súpum seyðið af því sem við höfum byrlað öðrum. Ef við höfum verið ástrík eigum við skilið að finna ástina endurgoldna, ef við höfum sáð til haturs eða hryggðar þá snúa þessar kenndir líka aftur. Og þegar þær snúa aftur ættum við ekki að hafa nokkra tilfinningu fyrir því að vera beitt óréttlæti.