Translations:Karmic Board/2/is

From TSL Encyclopedia

Allar sálir verða að fara fyrir karmíska ráðið fyrir og eftir hvert æviskeið á jörðu þar sem þeim er úthlutað viðfangsefni og karma fyrir hvert lífsskeið og fá svo endumat á frammistöðu sinni eftir ævilok. Fyrir atbeina varðveislumanna gagnasafna og skrásetningaengla hafa Karmadrottnar aðgang að æviskrám hvers lífsstraums á jörðinni. Þeir ákveða hverjir skulu endurfæðast, svo og hvar og hvenær. Þeir úthluta sálum til fjölskyldna og samfélaga, mæla út hvern „smástaf og stafkrók“ karma-lögmálsins sem verður að jafna. Karmíska ráðið starfar í samræmi við ÉG ER-nærveru einstaklingsins og Krists-sjálfs hans, ákvarða hvenær sálin hefur áunnið sér réttinn til að losna úr viðjum karmahjólsins og hringrás endurfæðinga.