Translations:Keeper of the Scrolls/3/is

From TSL Encyclopedia

Sem skrásetningavörður vil ég segja ykkur að ég ber mikla ábyrgð! Sem betur fer hefur hinn eilífi faðir gefið mér marga hæfa aðstoðarmenn [skrásetningaenglana]. Ég er hér til að segja ykkur að ekki svo mikið sem einn smástafur né einn stafkrókur fer til spillis af orku þeirri sem fer í gegnum neina lífsstrauma ykkar sem er ekki skrásett í hina eilífu annála. Sem betur fer, með krafti hins helga elds og kærleika hins ástríka Saint Germains, hefur verið komið á fót sérstöku ákvæði fyrir alheimslögmálið þar sem þeir sem nota fjólubláa eldinn trúfastlega geta afmáð skrásetningarnar. Og með áhrifum logans er karma þeirra fjarlægt næstum því um leið og það verður til.