Translations:Keeper of the Scrolls/4/is

From TSL Encyclopedia

Ég vil benda ykkur á, ástkæru vinir, að í hvert skipti sem karma er afmáð og umbreytt er það skrásett tímabundið. Ef einstaklingar halda áfram að endurtaka sömu brot gegn hinu mikla alheimslögmáli sí og æ og hvað eftir annað, þá kemur sá tími þegar vakin er athygli Karmadrottnanna á atferði þeirra. Þá kemur til kastanna sérstök virkni lögmálsins á lífsstraumana þar sem allt karma þeirra verður gert upp til jöfnunar. Því það er alger nauðsyn að mannkynið horfist í augu við sínar eigin mannlegu misgjörðir! Þessi aðgerð er gerð til að tryggja að allir lífsstraumar snúi sér ekki stöðugt til vinstri handar villunnar. Þetta er hamlandi aðgerð, gerð úr garði til að færa þá aftur til hægri handar Guðs og til hægri handar samfélagsins. Þetta er algjörlega gert í guðlegu kærleikaskyni.[1]

  1. The Keeper of the Scrolls, 22. apríl 1962.