Translations:Mary, the mother of Jesus/20/is
María guðsmóðir var viðurkenndur yfirmaður þessa samfélags ljósbera – þungamiðja í innsta hring postula, lærisveina og heilagra kvenna. Hún var sannkölluð uppspretta Krists-orkunnar sem streymdi um landið helga, Miðjarðarhafið og Litlu-Asíu, hvar sem fagnaðarerindið um Krist, ljós heimsins, var breitt út í útlöndum. Frá hjarta Maríu færðust sammiðja eldhringir – eldur heilags anda – út á við sem sívaxandi faðmur Guðs föður og Guðs-móður sem heldur öllu mannkyni innan viðja rúmfræði kærleikans.