Translations:Mary, the mother of Jesus/21/is
Talið er að María hafi varið síðustu árum ævi sinnar í Jerúsalem og hafi yfirgefið borgina helgu í kringum árið 48. Samkvæmt staðbundinni munnmælahefð fór Jóhannes með Maríu til Efesus um tíma til að flýja ofsóknir í Jerúsalem. Þegar við skoðum hin ýmsu munnmæli í kringum fráfall Maríu komumst við að því að vísbendingar taka okkur aftur til loftsalarins þar sem síðasta kvöldmáltíðin var haldin og þar sem postularnir hittust eftir að Jesús yfirgaf hóp þeirra. Í Postulasögunni lesum við að „allir þessir [postular] voru með einum huga stöðugir í bæninni ásamt konunum. María, móðir Jesú, var líka með þeim og bræður hans.“[1]
- ↑ Post 1:14.