Translations:Mary, the mother of Jesus/34/is

From TSL Encyclopedia

Hugmyndin um Guð sem móður er ekki framandi í andlegum málum Austurlanda. Hindúar hugleiða Guðs-móðurina í mynd Kúndalíni-gyðjunnar og lýsa henni sem hvítu ljósi, eða hinum hringaða höggormi, sem rís frá rót mænunnar til hvirfilsins og virkjar andleg vitundarstig hverrar orkustöðvar sem ljósið fer í gegnum á uppleiðinni. Hvort sem við erum karl eða kona er okkur ætlað að vekja upp þetta helga ljós hinnar innstu verundar okkar sem liggur í dvala innra með okkur. Úrlausnin að því að leysa þessa orku, Kúndalíni, er tilbeiðsla Móður-hyggjunnar.