Translations:Mary, the mother of Jesus/8/is
Í árdaga Atlantis þjónaði hún í Heilunarhofinu, hlúði að loganum og lærði lækningalistir og þær greinar sem nauðsynlegar eru til að kalla fram umbreytingar. Á þeim tíma tileinkaði hún sér mikla einbeitingu og helgaði sér hina flekklausu ímynd. Vitund hennar og bænakraftur meira en nokkuð annað hélt uppi loganum í musterinu og jók áhrif þess um Atlantis. Hreinleiki hjartaloga hennar og hollusta skein úr andliti hennar og var augljós öllum þeim sem gerðu sér tíðförult í musterið. Hún var hofmeyja allt það æviskeið.