Translations:Portia/3/is

From TSL Encyclopedia

Porsja er fulltrúi sjötta geisla, sem tengist almennri þjónustu og guðsþjónustu, í Karmíska ráðinu og heldur á lofti loga réttlætisins og tækifæranna fyrir hönd jarðarþróunarinnar. Hún þjónar með helgiveldi vogarmerkisins (sjá hin Tólf helgiveldi sólarinnar) og kennir mannkyninu að halda loga Krists í jafnvægi í hinum fjórum lægri líkömum með því að ná valdi yfir frumþáttunum fjórum. Þar sem réttlæti byggir á samspili hugsunar og tilfinninga er lykilatriði að jafnvægi sé á milli skapandi umskautunar hins karllæga og kvenlæga geisla guðdómsins, þ.e. á milli jin og jang þátta sköpunarinnar.