Translations:Transfiguration/16/is
Þegar frumeindaorkan losnar innan úr kjarna eigin verundar, streymir kraftur segulmagns Hinnar miklu meginsólar í gegnum lífsstrauminn, eykur orkutíðni frumeinda og frumna og færir fjóra lægri líkama hans í takt við hið guðlega mynstur. Á meðan þetta á sér stað dregur segullinn til sín leifar af misbeittu efni sem liggja á milli frumeinda og rafeinda. Að lokum eru eldar hringanna sjö sem umlykja sæðisfrumeind (kúndalíni-orkunnar) virkjaðir, sem eykur virkni hermesarstafsins; brennidepil segulmagns Hinnar miklu meginsólar í leiðarsteini nærverunnar sem dregur sæðisfrumeindina frá mænurótarstöðinni upp hryggsúluna. Þegar hún stígur upp, opnar hún hverja orkustöð upp á gátt og losar hreyfiafl heilags anda til hinna fjögurra lægri líkama.