Mark L. Prophet/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Line 1: Line 1:
<languages />
<languages />
[[File:Mark3-for-web.jpg|thumb|Mark L. Prophet]]
[[File:Mark3-for-web.jpg|thumb|Mark L. Prophet]]
'''Mark L. Prophet''', nú uppstigni meistarinn [[Special:MyLanguage/Lanello|Lanelló]] fékk köllun frá [[Special:MyLanguage/El Morya|El Morya]] til að stofna [[Special:MyLanguage/The Summit Lighthouse|Summit Lighthouse]] (Ljós-vitann á tindinum) og til að setja fram kenningar [[Special:MyLanguage/ascended master|uppstignu meistaranna]] fyrir [inngöngu mannkynsins inn í] vatnsberaöldina.  
'''Mark L. Prophet''', nú uppstigni meistarinn [[Special:MyLanguage/Lanello|Lanelló]], fékk köllun frá [[Special:MyLanguage/El Morya|El Morya]] til að stofna [[Special:MyLanguage/The Summit Lighthouse|Summit Lighthouse]] (Ljós-vitann á tindinum) og til að setja fram kenningar [[Special:MyLanguage/ascended master|uppstignu meistaranna]] fyrir [inngöngu mannkynsins inn í] vatnsberaöldina.  


<span id="Early_life"></span>
<span id="Early_life"></span>

Revision as of 13:17, 7 October 2024

Other languages:
Mark L. Prophet

Mark L. Prophet, nú uppstigni meistarinn Lanelló, fékk köllun frá El Morya til að stofna Summit Lighthouse (Ljós-vitann á tindinum) og til að setja fram kenningar uppstignu meistaranna fyrir [inngöngu mannkynsins inn í] vatnsberaöldina.

Fyrri ár

Mark L. Prophet var einkabarn Thomas og Mabel Prophets, fæddist aðfangadagskvöld 1918 í Chippewa Falls, Wisconsin. Á barnsaldri urðu dulrænar hneigðir hans augljósar. Hann sá og átti oft samskipti við engla og náttúruanda. Þegar hann var níu ára dó faðir hans og hafði það mikil áhrif á hann. Þegar hinn ungi Mark sótti hvítasunnukirkjuna sýndi hann óvenjulega trúarhollustu þar sem hann baðst fyrir á klukkutíma fresti við altarið sem hann byggði á háaloftinu heima hjá sér. Áður en hann lauk menntaskóla hafði hann hlotið allar níu náðargjafir heilags anda.

Þegar Mark var ungur maður birtist hinn uppstigni meistari El Morya honum en ævilöng hollusta hans við Jesú gerði honum ókleift að sættast á hinn túrbanklædda austurlenska gúrú og vísaði honum frá.

Nokkrum árum síðar sneri El Morya aftur. Eftir að hafa áttað sig á því að andleg vegferð hinna uppstignu meistara var líka leið Jesú tók Mark við Morya sem kennara sínum og lagði á sig hin ströngu ákvæði austrænnar lærisveinaþjálfunar. Mark lærði einnig kenningar Paramahansa Yogananda og var um tíma tengdur Self-Realization Fellowship (Sjálfsbirtingar-samfélaginu) sem og rósakransreglunni.

Eftir að hafa þjónað í flughernum í seinni heimsstyrjöldinni hélt Mark fyrirlestra um kristna og austurlenska dulspeki og viskumeistarana frá 1945 til 1952 en þá fór hann að gefa út röð bréfa fyrir nemendur sína sem kallast Ashram Notes, sem El Morya las fyrir frá ashram-aðsetri sínu í Darjeeling á Indlandi.

Stofnun Summit Lighthouse

Þann 22. apríl 1961 sótti Elizabeth Clare Prophet, tvíburalogi Marks, samkomu Summit Lighthouse í Boston og hitti Mark, boðbera uppstignu meistaranna í fyrsta sinn. Hún hóf síðan þjálfun sína sem boðberi meistaranna. Mark og Elizabeth gengu í hjónaband 16. mars 1963 og héldu áfram að byggja upp saman Summit Lighthouse.

Andlát

Þann 26. febrúar 1973 andaðist Mark eftir að hafa lokið köllun sinni. Hann er nú þekktur sem uppstigni meistarinn Lanelló.

Fyrri æviskeið

Mark var einnig boðberi í fyrri æviskeiðum. Sem spámaðurinn Nói birtist honum forboðið um flóðið og áminnti þjóð sína [um að taka sinnaskiptum] í meira en hundrað ár. Sem egypski faraóinn Akhenate, boðberi (sólguðsins) Atons, innleiddi hann eingyðistrú.

Sjá einnig

Meira um fyrri líf Mark Prophets, sjá Lanelló.

Til frekari upplýsinga

Persónulegar minningar Mark Prophets, sjá Annice Booth, Memories of Mark: My Life with Mark Prophet.

Myndband af lífi Marks, sjá Mark's Movie.

Heimildir

Prófíll bæklingur (1993)