Lord of the World/is: Difference between revisions
No edit summary |
(Created page with "Á þeirri stundu sem möttull Heimsdrottins færðist 1. janúar, 1956 tók Gátama Búddha á sig þá kvöð að viðhalda líflínunni að þróun jarðarinnar með eigin hjartaloga og Sanat Kumara, sem ríkjandi drottinn heimsins, sneri aftur til heimastjörnu sinnar, Venusar, þar sem hann hefur heldur úti mikilli starfsemi í þjónustu Stóra hvíta bræðralagsins á jarðarplánetunni.") |
||
Line 31: | Line 31: | ||
== Embættisfærsla == | == Embættisfærsla == | ||
Á þeirri stundu sem möttull Heimsdrottins færðist 1. janúar, 1956 tók Gátama Búddha á sig þá kvöð að viðhalda líflínunni að þróun jarðarinnar með eigin hjartaloga og Sanat Kumara, sem ríkjandi drottinn heimsins, sneri aftur til heimastjörnu sinnar, Venusar, þar sem hann hefur heldur úti mikilli starfsemi í þjónustu [[Stóra hvíta bræðralagsins]] á jarðarplánetunni. | |||
<div lang="en" dir="ltr" class="mw-content-ltr"> | <div lang="en" dir="ltr" class="mw-content-ltr"> |
Revision as of 14:44, 2 November 2024
Heimsdrottinn, embætti innan helgivaldsins sem er í höndum æðsta yfirvalds guðdómsins fyrir hönd byggðs hnattar og þróunar hans. Samkvæmt tilmælum Karmadrottna velur Sólar logosinn þann sem gegnir þessu embætti úr hópi þeirra sem hafa staðist búddhískar vígslur og eru lengst komnir á meðal vígsluþega samkvæmt lögum helgivaldsins í tilteknum heimi.
Drottinn heimsins tekur við hinni guðlegu forskrift fyrir heiminn frá hinu Þögla vitni og gætir þrígreinda logans fyrir hönd engla, höfuðskepnanna og mannanna sem þjóna til að úthverfa loga Krists á sviðum anda og efnis. Hann beinir sér einnig að öllum vitundarsviðum Guðs, þar með talið hinum fimm leyndu geislum. Að hafa vald á bæði innri sviðum (flötum hinna hinna fimm leyndu eða óvirku geisla) og ytri sviðum (flötum hinna sjö geisla) hins mikla orsakalíkama, stillir hann til friðar í fjórum lægri líkömum plánetunnar.
Gátama Búddha, Heimsdrottinn vorra tíma
Gátama Búddha gegnir embætti Heimsdrottins (nefndur „Drottinn jarðar“ í Opb. 11:4), en hann tók nýlega við af Sanat Kumara, sem hafði gegnt embættinu í tugþúsundir ára. Það er æðsta embættið í andlega helgivaldinu fyrir plánetuna – og samt er drottinn Gátama sá auðmjúkasti meðal uppstiginna meistara.
Á innri stigum viðheldur hann þrígreinda loganum, guðlega neistanum, fyrir þá lífsstrauma sem hafa misst beina snertingu við ÉG ER-nærveru sína og hafa skapað svo slæmt karma að þeir eru ófærir um að magna nægjanlegt ljós frá guðdóminum til að viðhalda endurholdgun sálar sinnar á jörðinni. Í gegnum ljósþráðavef sem tengir hjarta hans við hjörtu allra barna Guðs nærir drottinn Gátama hinn flöktandi loga lífsins sem ætti að brenna á altari hvers hjarta af meiri kærleika, visku og mætti sem hver og einn ætti að glæða með sinni eigin Krists-vitund.
Sanat Kumara, fyrrverandi Heimsdrottinn
Gátama Búddha tók við möttli Heimsdrottins 1. janúar, 1956 af Sanat Kumara, yfirstjórnanda og æðstaprests plánetunnar Venus, sem hafði gegnt stöðu Heimsdrottins frá myrkustu stundum í sögu jarðarinnar. Sanat Kumara, þekktur sem hinn aldni, bauð sig fram til að koma til jarðar fyrir þúsundum ára þegar kosmísk ráð höfðu ákveðið að jörðin yrði leyst upp. Svo mikil var fráhvarf mannkyns frá kosmískum lögmálum að Sólardrottnarnir höfðu ákveðið að ekki ætti að gefa mannkyninu frekari tækifæri sem hafði viljandi vanrækt og gleymt Guðs-loganum í hjörtum síunum. Ákvæði laganna fyrir björgun storðar var að einhver sem væri fær um að taka sér stöðu hins holdgaða „lamb“ í efnislegri áttund gæfi sig fram til að viðhalda jafnvægi náttúrunnar og hinum þrígreinda lífsloga fyrir hönd hverrar lifandi sálar. Sanat Kumara bauðst til að taka það að sér.
Í Opnun sjöunda innsiglsins segir Sanat Kumara söguna af því hvernig hollir vinir sínir frá Venus buðu sig fram til að fylgja honum og endurholdast meðal mannkyns til að aðstoða við að viðhalda loganum:
Gleði tækifærisins var blönduð sorg aðskilnaðarins. Ég hafði af frjálsum vilja valið mér útlegðarvist á myrkri stjörnu. Og þó að það ætti fyrir henni að liggja að verða frelsisstjarna vissu allir að það yrði fyrir mig dimm nótt sálarinnar. Þá birtist allt í einu úr dölum og fjöllum stór hópur barna minna. Það voru hundrað fjörutíu og fjórar þúsund sálir sem voru á leið til ljósahallarinnar okkar. Þær hringsóluðu nær og nær uns tólf sveitir hófu að kyrja söng frelsis, kærleika og sigurs. ... Þegar við horfðum á af svölunum, Venus og ég, sáum við þrettándu sveitina í hvítum klæðnaði. Það var konunglegt prestdæmi Melkísedeksreglunnar. ...
Þegar allur hópur þeirra hafði safnast saman, hring eftir hring í kringum heimili okkar og lofsöngur þeirra og tilbeiðsla til mín var lokið stóð talsmaður þeirra fyrir framan svalirnar til að ávarpa okkur fyrir hönd hins mikla fjölda. Það var sál þess sem þið þekkið og elskið í dag sem Heimsdrottinn, Gátama Búddha. Og hann ávarpaði okkur og sagði: „Ó hinn aldni, við höfum heyrt um sáttmálann sem Guð hefur gert við þig í dag og um skuldbindingu þína um að varðveita loga lífsins uns sumir á meðal jarðarþróunarinnar hafa glætt hann og endurnýjað aftur heit sín um að vera verðir logans. Ó hinn aldni, þú ert meistarinn okkur, sjálft líf okkar, Guð okkar. Við munum ekki skilja þig eftir umkomulausan. Við munum fara með þér.“[1]
Þannig komu þeir til jarðar með Sanat Kumara og englasveitum, í kjölfarið af fylgdarliði ljósbera sem undirbjuggu jarðveginn og stofnuðu Shamballa athvarfið – Hvítu borgina – á eyju í Góbíhafi (nú Góbíeyðimörk). Þar jarðtengdi Sanat Kumara hinn þríþreinda loga og kom í upphafi á fót snertiþræði við alla á jörðu með því að færa ljósgeisla frá hjarta sínu til þeirra eigin. Og þar voru sjálfboðaliðar frá Venus íklæddir þéttum holdshjúpi til að fylgja eftir jarðarþróuninni til sigurs heits síns.
Sá fyrsti af þessum óuppstignu ljósberum til að svara kalli Heimsdrottins frá efnisáttundinni var, skiljanlega, Gátama og í námunda var Maitreya. Báðir fylgdu vegferð Bódhisattva til búddhadóms, Gátama lauk „fyrstur“ rásinni og Maitreya „í öðru sæti“. Þannig urðu þeir tveir fremstir lærisveinar Sanat Kumara, annar tók að lokum við af honum í embætti Heimsdrottins, hinn sem Kosmískur Kristur og Búddha jarðarinnar.
Embættisfærsla
Á þeirri stundu sem möttull Heimsdrottins færðist 1. janúar, 1956 tók Gátama Búddha á sig þá kvöð að viðhalda líflínunni að þróun jarðarinnar með eigin hjartaloga og Sanat Kumara, sem ríkjandi drottinn heimsins, sneri aftur til heimastjörnu sinnar, Venusar, þar sem hann hefur heldur úti mikilli starfsemi í þjónustu Stóra hvíta bræðralagsins á jarðarplánetunni.
Gautama’s former office of Cosmic Christ and Planetary Buddha was simultaneously filled by Lord Maitreya. In the same ceremony, which took place at the Royal Teton Retreat, the office of World Teacher, formerly held by Maitreya, was passed to Lord Jesus and his dear friend and disciple Saint Francis (Kuthumi). Lord Lanto took the chohanship of the second ray July 1958, which had been held by Kuthumi, and beloved Nada assumed the office of chohan of the sixth ray, which had been held by Jesus during the Piscean age of which he was also the hierarch.
Saint Germain with Portia assumed the rulership of Aquarius on May 1, 1954. While Maitreya represents the Cosmic Christ and Planetary Buddha, Jesus holds the office of the personal Christ as the great exemplar of each one’s own Holy Christ Self.
Fulltrúar í heiminum
Lord Gautama presides as Hierarch of Shamballa, now on the etheric plane, to which the physical retreat has been withdrawn. Throughout the ages, the messengers of the Brotherhood, known and unknown, have held the balance in the physical octave for the flame and the Buddha of Shamballa. Thus Jesus, as the anointed messenger of Lord Maitreya, the Cosmic Christ, was the open door through his Sacred Heart for the light of the Father represented in the persons of Maitreya, Gautama, and Sanat Kumara to be anchored in the hearts of the multitudes of Earth’s people.
The Lord Jesus Christ defined his office in the physical octave according to cosmic law when he said: “As long as I AM in the world, the I AM that I AM, the Word which I incarnate, is the Light of the world.”[2] It was this anchoring of the Light of the I AM Presence in his heart chakra that enabled Jesus to take upon himself planetary karma, “the sins of the world,” in order that souls of Light might follow him on the path of Christhood until they, too, should bear in their body temples the Light of the Son of God.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, 4. kafli.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.
- ↑ Elizabeth Clare Prophet, The Opening of the Seventh Seal: Sanat Kumara on the Path of the Ruby Ray, 2. kafli.
- ↑ John 9:5.