Mars/is: Difference between revisions
No edit summary Tags: Mobile edit Mobile web edit |
No edit summary |
||
Line 44: | Line 44: | ||
Elsku vinir, ef eftirbátarnir á þroskabrautinni hafna niðurstígandi ljósinu eða neita að meðtaka það á nokkurn hátt eða brengla það með krafti hels og dauða eða velja að beina því frá sér og þar með ná sér niður á óvildarmönnum sínum og þjóna blóðhefndum sínum, þá munu þeir verða útilokaðir. Og þið munið sjá aðskilnað [[Special:MyLanguage/Etheric plane|ljósvakasviðsins]] frá jarðsviðinu. Og þeir sem eru af ljósinu munu ganga inn í ljósvakalíkamann og aðskiljast hinum eins og kjarninn er aðskilinn frá hisminu, eins og slíður er fjarlægt. Og ljósberarnir munu snúa aftur til paradísarvistar í ljósvakaáttundinni og [[Special:MyLanguage/golden age|gullöldin]] mun taka við. Og jarðarskelin sjálf mun því verða ein af þessum hrjóstrugu plánetum, því þetta er nákvæmlega það sem hefur gerst á [[Special:MyLanguage/Venus (the planet)|Venus]] og á Mars. | Elsku vinir, ef eftirbátarnir á þroskabrautinni hafna niðurstígandi ljósinu eða neita að meðtaka það á nokkurn hátt eða brengla það með krafti hels og dauða eða velja að beina því frá sér og þar með ná sér niður á óvildarmönnum sínum og þjóna blóðhefndum sínum, þá munu þeir verða útilokaðir. Og þið munið sjá aðskilnað [[Special:MyLanguage/Etheric plane|ljósvakasviðsins]] frá jarðsviðinu. Og þeir sem eru af ljósinu munu ganga inn í ljósvakalíkamann og aðskiljast hinum eins og kjarninn er aðskilinn frá hisminu, eins og slíður er fjarlægt. Og ljósberarnir munu snúa aftur til paradísarvistar í ljósvakaáttundinni og [[Special:MyLanguage/golden age|gullöldin]] mun taka við. Og jarðarskelin sjálf mun því verða ein af þessum hrjóstrugu plánetum, því þetta er nákvæmlega það sem hefur gerst á [[Special:MyLanguage/Venus (the planet)|Venus]] og á Mars. | ||
Þér ástkæru, skiljið því að þróun | Þér ástkæru, skiljið því að þróun ljóssins á sér stað á ljósvakasviðum í mótsetningu við slíður plánetuheimkynna sem virðast hrjóstrugar eða líflausar eða of heitar, eða loftslagsaðstæðurnar eru óæskilegar eða óbyggilegar eða ófærar til að viðhalda lífverum. | ||
Skiljið, ástkærir, að eitt af öðru hafa plánetuheimili jarðarinnar verið eyðilögð. Og þess vegna þráum við ekki að sjá aðskilnað eterlíkama jarðarinnar heldur að styrkleiki ljóssins sem er að lækka skuli knýja meirihluta þróunar jarðarinnar til að velja að lifa í gullöldinni. Og ef svo er, ástkærir, og hin raunverulega, efnislega jörð ætti að ganga inn í hina miklu gullöld, þá myndi það valda keðjuverkun fyrir umbreytingu alls sólkerfisins aftur í upprunalegan, óspilltan hreinleika sinn á þeirri eterísku áttund, sem hægt er að lækka niður í hið efnislega.<ref>Zarathustra, “A New Day: The Demagnetization of Earth,” {{POWref-is|28|48|, 1. desember 1985}} | Skiljið, ástkærir, að eitt af öðru hafa plánetuheimili jarðarinnar verið eyðilögð. Og þess vegna þráum við ekki að sjá aðskilnað eterlíkama jarðarinnar heldur að styrkleiki ljóssins sem er að lækka skuli knýja meirihluta þróunar jarðarinnar til að velja að lifa í gullöldinni. Og ef svo er, ástkærir, og hin raunverulega, efnislega jörð ætti að ganga inn í hina miklu gullöld, þá myndi það valda keðjuverkun fyrir umbreytingu alls sólkerfisins aftur í upprunalegan, óspilltan hreinleika sinn á þeirri eterísku áttund, sem hægt er að lækka niður í hið efnislega.<ref>Zarathustra, “A New Day: The Demagnetization of Earth,” {{POWref-is|28|48|, 1. desember 1985}} |
Revision as of 08:55, 16 June 2025


Uppstignir meistarar kenna að reikistjarnan Mars fari með umboð hinnar guðlegu móður og mænurótarstöðvarinnar við hrygginn (mūlādhāra). boðberinn hefur lýst Mars sem „hvítu hveli ofsalegra eldorku sem stafar frá hinni guðlegu móður.“
Fyrir löngu beindist öfugþróun á Mars að því að brengla hið hreina hvíta ljós Guðs-móðurinnar í stríði og misnotkun á hinum helga eldi. Með misnotkun á frjálsum vilja og mænurótarstöðinni brengluðu þeir Guðs-móðurljósinu í því sem við köllum „misbeiting marsorkunnar“. Stríð og önnur ofbeldisfull átök koma einnig fram í sveiflutíðni og áru Mars.
Afmyndun marsorkunnar
Misbeiting marsorkunnar getur komið fram í gegnum hvaða orkustöðvar sem er en tengjast sérstaklega misbeitingu Guðs-móðurljóssins í mænurótarstöð hryggjarins. Það getur falið í sér: árásargirni, reiði, hroka, rifrildi, ásakanir, æsing, sinnuleysi, trúleysi, tortímingu, pirring, ágengar meiningar; gagnrýni, fordæmingu og dómhörku; illkvittna, fávísa, tilfinningasama og nautnafulla segulmagnaða kynorku; and-ameríska hyggju, and-föður, and-móður, and-Krist og and-heilags anda birtingarmyndir í fjórum fjórðungum efnissviðsins (á hinu líkamlega-, geðræna-, huglega- og ljósvakasviði).
Sú staðreynd að svo margar af þessum misbeitingum byrja á bókstafnum „A“ [á ensku] gefur til kynna að þær séu einnig afbökun á ljósi föðurins, Alfa. Boðberinn hefur útskýrt að „fjölskyldumeðvirkni“ sé önnur birtingarmynd marsorku. Það er mannleg tengsl byggð á blóðböndum frekar en andlegum böndum. Stríð og önnur ofbeldisfull átök koma einnig í gegnum orkutíðni og áru Mars.
Hin öfgafulla misbeiting marsorkunnar er sköpun hins vélræna manns, hinnar guðlausu sköpunar (sjá skilgreiningu hins Guðdómlega mikla stjórnanda, The Mechanization Concept, Pearls of Wisdom, 8. bindi, nr. 3–26; einnig gefið út af Mark L. Prophet, The Soulless One: Cloning a Counterfeit Creation).
Líf á Mars
Verur sem búa á Mars eru á geðheimasviðinu, ekki efnisplaninu eins og gefur að skilja. Mikael erkiengill hefur veitt svipmynd af þeirri plánetu:
Endalykt Guðs-móðurlogans, ef það gerist eins og það hefur gerst á fyrri öldum, er ringulreið og stjórnleysi, þar sem reikistjörnur (eins og Mars) má smætta niður í flokka manna með einkaheri sína sem taka sér stöðu hér og þar, krefjast landsvæðis síns og berjast hver gegn öðrum. Þetta er hræðileg staða, verri en á tímum lénsherranna.[1]
Marsbúar í þessu sólkerfi hafa orð á sér fyrir að vera stríðsgjarnir, vélrænir og hafa umsnúið orku Guðs-móðurinnar til misnotkunar á kjarnorku. Sumt af þessari öfugþróun á Mars hefur birst á Jörðinni, á sama hátt og við höfum birtingarmyndir hér frá hverri plánetu í þessu sólkerfi og smástirnabeltinu sem og frá plánetum og stjörnum langt handan sólkerfisins okkar. Jörðin er krossgötu margra þróunarmynda.
Mars og tunglmóðirin
Kúthúmi útskýrir tengslin milli Mars og Tunglmóðurinnar:
Með hraðri misbeitingu tunglorkunnar hafa hinir föllnu skapað í stað menningar Guðs-móðurinnar vélræna tunglómenningu, samfélag og félagsfræði á hinu lægra geðheimasviði — og allt þetta fyrir tilstilli áhrifa Tunglmóðurinnar sem hefur afnumið agaþjálfun hvíta ljóssins frá lærisveinunum og skapað hernaðarstefnu Marsbúa sem brennidepil í þessum hvíta eldkjarna sólkerfisins þar sem geislarnir sjö og áttunda geislinn eru brenglaðir.[2]
Tunglmóðirin hefur lagt undir sig Mars með sínu falska helgiveldi. Þegnar hennar vilja nú leggja undir sig Jörðina. Þeir vilja flytja örverur illskunnar frá þeim stað þar sem þeir hafa alið af sér illskuna yfir á næsta stað sem þeir vilja leggja undir sig. Ein leið til þess gerist þegar við beinum athygli okkar á Mars. Að senda farartæki frá þessari plánetu til Mars beinir athygli fólks að þeirri plánetu og þessi athygli myndar bogann þar sem geðorkusvið Mars umsnýst til Jarðar.
Krafta fjórða geislans þarf til að ráða niðurlögum Mars. Þar eru fremst í flokki: Serapis Bey, Hreinleiki og Astrea, Erkiengillinn Gabríel, Guðlega móðirin og allar liðsveitir hinnar stórfenglegu Kalí, Maríu guðsmóður og Kvan Jin.
Mars og sigur Jarðar
Zaraþústra hefur útskýrt hvernig örlög reikistjarnanna í sólkerfinu tengjast:
Elsku vinir, ef eftirbátarnir á þroskabrautinni hafna niðurstígandi ljósinu eða neita að meðtaka það á nokkurn hátt eða brengla það með krafti hels og dauða eða velja að beina því frá sér og þar með ná sér niður á óvildarmönnum sínum og þjóna blóðhefndum sínum, þá munu þeir verða útilokaðir. Og þið munið sjá aðskilnað ljósvakasviðsins frá jarðsviðinu. Og þeir sem eru af ljósinu munu ganga inn í ljósvakalíkamann og aðskiljast hinum eins og kjarninn er aðskilinn frá hisminu, eins og slíður er fjarlægt. Og ljósberarnir munu snúa aftur til paradísarvistar í ljósvakaáttundinni og gullöldin mun taka við. Og jarðarskelin sjálf mun því verða ein af þessum hrjóstrugu plánetum, því þetta er nákvæmlega það sem hefur gerst á Venus og á Mars.
Þér ástkæru, skiljið því að þróun ljóssins á sér stað á ljósvakasviðum í mótsetningu við slíður plánetuheimkynna sem virðast hrjóstrugar eða líflausar eða of heitar, eða loftslagsaðstæðurnar eru óæskilegar eða óbyggilegar eða ófærar til að viðhalda lífverum.
Skiljið, ástkærir, að eitt af öðru hafa plánetuheimili jarðarinnar verið eyðilögð. Og þess vegna þráum við ekki að sjá aðskilnað eterlíkama jarðarinnar heldur að styrkleiki ljóssins sem er að lækka skuli knýja meirihluta þróunar jarðarinnar til að velja að lifa í gullöldinni. Og ef svo er, ástkærir, og hin raunverulega, efnislega jörð ætti að ganga inn í hina miklu gullöld, þá myndi það valda keðjuverkun fyrir umbreytingu alls sólkerfisins aftur í upprunalegan, óspilltan hreinleika sinn á þeirri eterísku áttund, sem hægt er að lækka niður í hið efnislega.<ref>Zarathustra, “A New Day: The Demagnetization of Earth,” Pearls of Wisdom, 28. bindi, nr. 48, 1. desember 1985.
Í stjörnuspeki
Stjörnuspekingar sjá Mars sem reikistjörnu athafna sem byggjast á löngunum. Mars hrærir í orku sem leiðir til athafna, en hverjar sem langanir þínar eru, þá er það þangað sem orkan þín mun fara og það er sú tegund athafna sem þú munt taka þátt í. Með því að tengja langanir okkar við stjörnu okkar voldugu ÉG ER Nærvera, getum við riðið og yfirbugað Mars - við getum „riðið nautinu“ og nýtt okkur sanna sköpunarelda Mars, hreina hvíta eld Guðdómlegu Móðurinnar.
Í hvert skipti sem við sjáum Mars-stillingu í okkar eigin stjörnuspeki verðum við að ákveða að vinna „Mars-sigur“ til að láta ekki rangfærslurnar yfirbuga okkur. Með því að ná tökum á Mars-orkunum getum við unnið sigur í hvítum eldi Móðurinnar.
Sjá einnig
Heimildir
Elizabeth Clare Prophet, 29. febrúar, 1976.
Elizabeth Clare Prophet, 29. júní 1988.
Elizabeth Clare Prophet, 18. nóvember 1988.
Pearls of Wisdom, vol. 35, no. 55, 21. nóvember 1992.