Ramakrishna/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
 
Line 17: Line 17:
Ramakrishna [[Special:MyLanguage/ascension|steig ekki upp til himins]] við lok þess lífs. Hann endurfæddist í Bandaríkjunum til að jafna karma sitt með [[Special:MyLanguage/violet flame|fjólubláa loganum]], var nemandi í [[Special:MyLanguage/I AM Activity|ÉG ER starfseminni]], lauk nemaþjálfun sinni og starfi þar og steig upp til himins við lok þessa lífs.
Ramakrishna [[Special:MyLanguage/ascension|steig ekki upp til himins]] við lok þess lífs. Hann endurfæddist í Bandaríkjunum til að jafna karma sitt með [[Special:MyLanguage/violet flame|fjólubláa loganum]], var nemandi í [[Special:MyLanguage/I AM Activity|ÉG ER starfseminni]], lauk nemaþjálfun sinni og starfi þar og steig upp til himins við lok þessa lífs.


Í ''Pearl of Wisdom“ (Viskuperlu)'' frá 20. janúar 1980 minntist [[Páll Feneyingur]] á „hinn uppstigna meistara Ramakrishna, en eiginkona hans og ástkær [[Special:MyLanguage/twin flame|tvíburalogi]], Sarada Devi, er enn óuppstigin í samfélagi ljósbera, klædd möttli hans — hún er jarðtenging ástar hans, hann líflína jarðtengingar hennar.“  
Í ''Pearl of Wisdom“ (Viskuperlu)'' frá 20. janúar 1980 minntist [[Special:MyLanguage/Paul the Venetian|Páll Feneyingur]] á „hinn uppstigna meistara Ramakrishna, en eiginkona hans og ástkær [[Special:MyLanguage/twin flame|tvíburalogi]], Sarada Deví, er enn óuppstigin í samfélagi ljósbera, klædd möttli hans — hún er jarðtenging ástar hans, hann líflína jarðtengingar hennar.“  


<span id="Sources"></span>
<span id="Sources"></span>

Latest revision as of 14:33, 24 July 2025

Other languages:
Ramakrishna in 1885

Sri 'Ramakrishna var uppi á árunum 1836 til 1886. Hann var hindúadýrlingur og dulspekingur, fæddur í fátækri brahmínprestafjölskyldu í þorpi í Bengal á Indlandi. Fyrir fæðingu sína sá faðir hans sýn þar sem Rama sagði honum að Rama myndi endurfæðast sem sonur hans. Sjö ára gamall upplifði hann sitt fyrsta andlega alsæluástand þegar hann tilbað gyðjuna Kali.

Þegar hann var tuttugu og þriggja ára giftist hann Sarada Deví, sem þá var aðeins fimm ára gömul. Í hjónabandi þeirra tilbað hann konu sína sem holdtekju hinnar guðdómlegu móður og var skírlífur alla ævi.

Ramakrishna reyndi fyrir sér í ástundun ýmissa trúarbragða, þar á meðal kristni og íslam, og sagðist geta öðlast samadhi með þátttöku í þeim öllum. Hann hafði ekki aðeins sýnir af hinni guðdómlegu móður, heldur einnig af Allah og Jesú. Hann sagði: „Ég hef komist að því að það er sami Guð sem beina sér að, þó eftir mismunandi leiðum.“[1]

Ramakrishna sagði að enginn ágreiningur ætti að vera um eðli Guðs:

Í raun eru [mismunandi skoðanir um eðli Guðs] ekki mótsagnakenndar. Þegar maðurinn skilur hann, tjáir hann sig um reynslu sína í samræmi við það. Ef maður verður upplýstur af honum á einhvern hátt, þá finnur maður enga mótsögn. ... Kabír [hindúískur dulspekingur frá fimmtándu öld] var vanur að segja: „Hinn formlausi algjörleiki er faðir minn, og Guð í formi er móðir mín.“[2]

Lokaæviskeið og uppstigning

Ramakrishna steig ekki upp til himins við lok þess lífs. Hann endurfæddist í Bandaríkjunum til að jafna karma sitt með fjólubláa loganum, var nemandi í ÉG ER starfseminni, lauk nemaþjálfun sinni og starfi þar og steig upp til himins við lok þessa lífs.

Í Pearl of Wisdom“ (Viskuperlu) frá 20. janúar 1980 minntist Páll Feneyingur á „hinn uppstigna meistara Ramakrishna, en eiginkona hans og ástkær tvíburalogi, Sarada Deví, er enn óuppstigin í samfélagi ljósbera, klædd möttli hans — hún er jarðtenging ástar hans, hann líflína jarðtengingar hennar.“

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lost Teachings on Your Higher Self.

Elizabeth Clare Prophet, 12. júlí 1990.

Elizabeth Clare Prophet, 29. júní 1992.

  1. Encyclopaedia Britannica (1973), sjá „Ramakrishna.“
  2. Ramakrishna, vitnað í Swami Prabhavananda og Christopher Isherwood, þýð., How to Know God (Hvernig þekkja má Guð) (Hollywood, Kalifornía: Vedanta Press, 1981), bls. 158.