Meginsólin

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:56, 27 March 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Hin Mikla meginsól, einnig kölluð hin Mikla meginstöð, er miðstöð algeimsins; samþættingarstöð anda- og efnishluta algeimsins; upphafsstaður allrar efnis- og andlegrar sköpunar; hins hvíta eldkjarna algeims-eggsins. Guðstjarnan, Sírius er þungamiðja Meginsólarinnar miklu í vetrarbrautinni okkar.

Þessi andlega sól á bak við efnslegu sólina í miðju alheimsins er ekki, eins og það lítur út fyrir að vera, handan við efnislegu sólina; hún er í samræmi við efnislegu sóla eða legst ofan á hana en í annarri vídd. Orsakalíkami mannsins er smækkuð eftirmynd af hinni Miklu megisól. Þar að auki er hver birtingarmynd frumeindarinar byggð á þessu sama mynstri orkuvafninga sem þróast á sviðum innan sviða.

Litabönd hinnar Miklu meginsólar sem og frumeindarinnar eru vitundarsvið Guðs sem eru aðeins aðgreind út frá orkutíðni þeirra og bylgjulengd; og hvíti eldkjarninn er í brennidepli andans sem umbreytist í efni og efni sem umbreytist í anda. Þannig er Meginstöðin (kjarni anda- og efnishluta algeimsins) og í hjarta hverrar frumeindar andleg sól og efnisleg sól sem eru til samhliða. Hér í hvíta eldkjarnanum veitir birtingarmynd anda og efnis tilskilinn efnivið fyrir sköpunina. Hér og aðeins hér getur sköpun fæðst.

Ellefu sammiðja hringir umlykja kjarna veru Guðs. Þessir, ásamt miðstöðinni, mynda þau tólf meðvitundarsvið sem finnast í atómi Guðs — Sjö geislar og fimm leyndir geislar.

Sjá einnig

Central sun

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Immortality.