Translations:Jesus/35/is
Á aldrinum tólf til þrítugs lærði Jesús bæði í ytri og innri Uppstigningarmusteri Ascension Temple|Bræðralagsins í Lúxor og í Himalajafjöllum. Serapis Bey, yfirstjórnandi og æðsti prestur Upprisumusterisins í Lúxor, Egyptalandi, hefur lýst því hvernig meistarinn Jesús kom til Lúxor sem mjög ungur maður og kraup frammi fyrir æðstaprestinum „hafnaði öllum heiðursveitingum sem honum var boðið“ og bað um að hljóta vígslu í fyrstu gráðu hins andlega lögmáls og launhelga. „Ekkert stolt spillti fyrir sýn hans — engin kennd um frægð og frama né neinar rangar væntingar þó hann hefði vel getað vænst þess að hljóta æðstu heiðursmerki.“[1]
- ↑ Serapis Bey, Dossier on the Ascension, bls. 33.