Lærisveinaþjálfun
Að vera lærisveinn merkir að vera fylgismaður Krists og kenninga Stóra hvíta bræðralagsins; ferlið við að ná sjálfsfærni með sjálfsaga með vígslum tileinkuðum Búddha, heimskennurunum og uppstignu meisturunum.
Vígslustig
Vígslustig lærisveinaþjálfunarinnar og hið lifandi Orði:
(1) Nemi: Í þessum áfanga stundar einstaklingurinn nám, nemur rit og kenningar meistarans. Honum er frjálst að koma og fara í samfélagi hans eins og hann vill, njóta samvistar við fylgjendur hans og ávaxta þjónustulundar þeirra en hann hefur ekki tekið á sign neina sérstaka ábyrgð gagnvart persónu meistarans. Hann hefur ekki strengt nein heit né skuldbundið sig en gæti verið að læra til að „reynast hæfur“[1] til þess að öðlast viðurkenningu sem þjónn, eða meðþjónn (annars þekkt sem „chela-nemi“), sem deilir gleðinni af heimsköllun meistarans.
(2) Lærisveinn (chela): Einstaklingurinn þráir að stofna til tengsla við meistarann - að fá beina kennslu frá meistaranum frekar en í gegnum útgefin skrif hans eingöngu. Lærisveinninn svarar kalli meistarans um að yfirgefa net sín af karmískum flækjum og veraldlegri þrá og fylgja honum: „Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.“[2] Lærisveinninn tekur við vígslum hins kosmíska Krists í þjónustu sinni við meistarann. Hjarta hans, hugur og sál eru farin að meta betur og sýna meiri kærleika sem þakklæti fyrir kennsluna sem hann fékk á fyrra námsstigi. Þessi kærleikur er sýndur í verki sem fórnfýsi, ósérhlífni, þjónusta og fela sig í hendur Persónu Krists, sólina á bak við Mannsson meistarans; þegar þessu skrefi hefur verið hraðað að stigi „þóknanlegrar fórnar“ og chela-neminn er iðinn við að jafna á þrígreindan loga sinn og karma, gæti komið til greina í næsta skrefi.
(3) Vinur: Þeir sem taldir eru til vina meistarans er boðið tengsl sem félagar og starfsfélagar — „Ég kalla yður ekki framar þjóna ... ég kalla yður vini “[3] — sem merkir að lærisveinninn tekur að sér aukna ábyrgð á skuldbindingum meistarans sem heimsfrelsari. Vinurinn ber krossinn svo og ljósbyrði meistarans; hann auðsýnir sama vinartraust eins og Abraham á sínum tíma og aðrir chela-nemar sem hafa náð því stigi að skilja meistarann og reynslu hans frá innstu hjartarótum – og veitir huggun og hughreystingu, ráðgjöf og stuðning af tryggð við bæði markmið og meistarann persónulega.
(4) Bróðir: Bróðurgráðunni er náð þar sem eining á milli Guru og chela-nema, Alfa og Ómega sambandsins er fullnustað í samskiptum á milli tveggja hjarta; gúrúinn hefur í raun gert lærisvein sinn að hluta af sínu eigin holdi og blóði og boðið honum allan kraftinn sem hann hefur náð og hluta af möttli sínum og valdi sem lið í undirbúningi meistarans fyrir uppstigningu sinni og lærisveinsins sem tekur við og leysir hann af. Þetta er einkennandi fyrir kærleikssambandið á milli Jesú og Jóhannesar hins elskaða, móður hans, Maríu guðsmóður og ef til vill hans við hans eigin bróður (eða frænda) Jakob sem var af holdi og blóði hans.
Kristur eða hinn eini Krists-borni: hinn smurði hinu holdgerða Orðs
The Vegur lærisveinaþjálfunarinnar
Að vera tiltækt verkfæri er einn af stóru lyklunum á vegi lærisveinaþjálfunarinnar. Lærisveinninn er sá agaði sem er alltaf tilbúinn.
Kúthúmi segir:
Lærisveinn er sá sem iðkar fræði Guðs sjálfs, drottnar yfir og aga hinn ytri persónuleika og sitt eigið hugmyndamynstur, með Guðsvitund um sjálfan sig sem einstaklingsbundna birtingarmynd ÉG ER SEM ÉG ER . Þeir sem eru svo heppnir að hafa valið lærisveinaskap sem lífsstíl, hafa þar með valið að þjóna ljósinu. Með því að setja ljósið alltaf í fyrsta sæti munu þeir komast að því að einn daginn mun ljósið setja þá fyrst – í miðju vilja Guðs. Þá verður ekkert ómögulegt fyrir lærisveininn, því það er ekki erfitt fyrir meistarann.[4]
Til frekari upplýsingar
Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, 25–30 kafli.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation
- ↑ II Tim. 2:15.
- ↑ Matt 4:19; Mark 1:17.
- ↑ Jóh 15.15
- ↑ Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, kafli 30.