Helgistarf
„Helgistarf“ er sú tiltekna köllun, lífsháttur eða starfsgrein þar sem maður staðfestir gildi sálar sinnar bæði fyrir sjálfan sig og náungann. Maður fullkomnar helgistarf sitt með því að þroska hæfileika sína, sem Guð hefur gefið, svo og náðargjafir heilags anda og leggja þær á altari þjónustunnar við mannkynið.
Helgistarfið er ekki aðeins framlag manns til samfélags síns heldur er það leiðin sem gerir sálinni fært að jafna þrígreinda loganum og standast prófraunir á hinum sjö geislasviðum. Það er ómissandi þáttur á vegferðinni til endurfundar „við“ Guð með því að gefa af sjálfum sér í raunhæfu starfi „fyrir“ Guð.
Helgistarf og samfélagið
Samfélag heilags anda er hópátak sálna sem sameinast í helgistarfi. Þegar við hugleiðum líf Jesú finnum við að hagnýt kristni hans, leið hans til að vinna verk Guðs í manninum, hófst á lítillátu heimili þar sem móðir hans kenndi honum vegi andans og hjá föður sínum var hann frá blautu barnsbeini í læri til að verða trésmiður.
Í samfélagi Essena í Kúmran, sem er dæmi um samfélag heilags anda, báru allir lotningu fyrir helgistarfi hvers og eins. Sérhver karl og kona, sem vígslumaður Krists, var krafinn um að ná tökum á efnissviðinu með því að uppfylla umboð ákveðinnar köllunar eða starfsgreinar. Þetta varð ekki aðeins framlag hans til samfélagsins heldur einnig leiðin til að fullkomna sál sína. Þannig veitir helgistarf á hverri öld færi á því að sálin geti jafnað hinn þrígreinda loga og staðist prófraunir geislasviðanna sjö bæði í orði og á borði.
Nemendum við Summit University er kennt að leitast við ná fullkomnun á öllum sviðum lífsins sem leið til skapandi lífsfyllingar og til að ná tökum á sálarkröftunum. Þeir eru hvattir til að taka að sér störf sem gera þeim kleift að uppgötva þessa ákveðnu snilld sem Guð hefur gefið öllum. Þeir verða að ákveða, ef þeir hafa ekki þegar gert það, hver lífsköllun þeirra er og hvernig þeir geta best brugðist við kröfum sálarinnar um grundvallaratriði lífsins svo að þeir standi við heitin sem þeir tóku frammi fyrir Karmadrottnunum fyrir þessa lífstíð.
Þegar lengra líður í námi velta nemendur fyrir sér hvert helgistarf þeirra verður, hvaða æðstu þjónustu er þeim ætlað að fullkomna og veita einstaklingnum, til að efla kynstofninn og samfélagið í heild. Hvort sem það er verkleg eða fræðileg starfsgrein, með eða án peningalegra umbunar, þá er helgistarfið leiðin til að nemandinn geti staðfest verðleika sálarinnar bæði fyrir sjálfum sér og náunganum - hæfileikann sem er margfaldaður, verkfærið sem er brýnt. Helgistarfið sem innri köllun sálarinnar verður að fullkomna á hagnýtan hátt sem á við í daglegum þörfum samfélagsins. Hið helga starf er ómissandi hluti til sjálfsbirtingar. Það er logi heilags anda í framkvæmd.
By the sacred labor, men and women realize their potential to be the Christ in action as well as in contemplation. Through the sacred labor, students perfect certain skills necessary to the mastery of an aspect of time and space, that they might ultimately learn the mastery of self. Trained in the things of the Spirit, students of Summit University go forth to lead balanced lives (whether they marry and raise families or remain celibate) and become responsible members of the world community. Thus they are able to relate to the now of earthly existence, to the needs of family, friends, and neighbors, all the while pursuing the goal of the ascension and helping others to follow the true teachings of Christ as defined by the ascended masters.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.
Clara Louise Kieninger, Ich Dien.