Arktúrus og Viktoría

From TSL Encyclopedia
Revision as of 11:27, 25 November 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Arktúrus og Viktoría, elóhímar sjöunda geislans, hafa orku sálarsetur-sorkustöðvar plánetunnar í brennidepli frá athvarfi þeirra á ljósvakasviðinu nálægt Lúanda í Angóla, Afríku. Þetta athvarf er tileinkað frelsi og sigurför hnattarins. Þau hafa einnig loga miskunnar, fyrirgefningar og gullgerðarlistar (alkemíu) í brennidepli. Sláttur fjólubláa logans frá hjörtum Arktúrusar og Viktoríu framkallar taktinn að helgisiðum með guðþjónustu og lotningu fyrir lífinu.

Arktúrus notar fjólubláa logann sem hann beinir að vísindalegum aðgerðum og umbreytandi kjarna frelsis á meðan Viktoría geislar frá sér fjólubláum (brönugrös-lituðum) loga sem stendur fyrir miskunn og frelsisást.

Núverandi þjónusta Arktúrusar

Þjónusta elóhíma sjöunda geislans við þessa plánetu hefur verið efld frá og með tuttugustu öld sem leiddi af ívilnun sem Saint Germain var gefin á þriðja áratug síðustu aldar þar sem honum var heimilað að birta hinum ytri heimi kenningar ÉG ER-viskunnar. Áður fyrr hafði þessi kennsla aðeins verið veitt í athvörfum Bræðralagsins.

Við opnun sýningarinnar Framför aldarinnar (Century of Progress) í Chicago árið 1933, hóf Arktúrus sérstaka aðgerð með frelsisloganum til aðstoðar Ameríku. Á þeim áratug komu aðrar kosmískar verur út úr þögninni miklu (Nirvana) til að aðstoða Saint Germain í stórkostlegu starfi sínu fyrir hönd þróunar plánetunnar. Þessi aðstoð hefur verið aukin og efld á undanförnum árum, og áframhaldandi stuðningur Stóra hvíta bræðralagsins, uppstiginna hersveita og kosmískra vera hafa augljóslega komið fram í þessum ráðstöfunum.

Kraftaverk fjólubláa logans

Arktúrus og Viktoría hafa oft talað um kosti fjólubláa logans:

Vandamál heimsins eru stærri en við bæði tvö og við öll. Þau eru ekki stærri en elóhímar Guðs en þau bera okkur ofurliði þegar við höfum ekki samband við neinn á jörðinni sem getur kallað fram fjólubláa logann svo að við getum gripið í taumana.

Fjólublái loginn er því úrlausn hins aðsteðjandi vanda til að koma hlutunum á hreyfingu ... á öllum þessum stöðum sem þú sérð þar sem þú situr fyrir framan sjónvarpstækin þín og starir undrandi á voðaverkin sem eru framin. Samt má spyrja hvort að þú hafir mettað hættusvæðin með fjólubláa loganum? ... Hvaða vandamál sem þú sérð þegar þú virðir fyrir þér heimilislíf þitt, fjölskyldu þína og börnin þín, skaltu vita að fjólublái loginn getur og mun gera gæfumuninn! ...

Mörg ykkar hafið séð myndina Aladdín og þið hafið sagt við ykkur sjálf: „Nú, það er bara það sem ég þarf – ég þarf flöskuanda!“... Jæja, Saint Germain er líka flöskuandi. Svo þið hafið flöskuandana ykkar. Reyndar eruð þið með tíu þúsund sinnum-tíu þúsund flöskuanda! Því að allir uppstignir meistarar og hersveitir Drottins eru búin og boðin til að svara hverju einasta boði ykkar, svo framarlega sem beiðni ykkar sé vilji Guðs og í samræmi við kosmíska tímaáætlun fyrir þann atburð. ... Við Arktúrus og Viktoría fögnum, og erum ávallt reiðubúin til að bjarga jörðinni sem svar við boðum "ykkar"![1]

Arktúrus og Viktoría þeyta til okkur þessa áskorun:

Svo þið getið ákveðið hvort að fjólublái loginn verði ykkur stökkbretti fyrir sigur ykkar! ...

Þannig að þið munuð ákveða hvort að fjólublái loginn verði sá x þáttur í viðsnúningi lífs ykkar, í fjármálum ykkar og framtíðarhorfum!

Allt sem gerist fyrir ykkur í þessum heimi er hægt að breyta með fjólubláa loganum! Aðeins þið getið skorið úr um það. ...

Einhvern veginn trúir mannshugurinn sem er með jaðarbúann og gervisjálfið í eftirdragi þessu ekki alveg, jafnvel þegar hugar og hjörtu chela-nema eiga í hlut, að fjólublái loginn geti gert allt hvaðeina sem þið þurfið að koma í verk. ... Já, mín hjartkæru, að sjá verður trú. Og við ætlum að sjá til þess að á einhverju stigi verundar ykkar, bæði meðvitað og ómeðvitað, munuð þið viðurkenna kraftaverk hins fjólubláa loga sem þið kallið fram.

Þegar alkemisti fer á rannsóknarstofu sína, ef hann framkvæmir ekki tilraunina, ef hann stundar ekki gullgerðarlistina, gerist ekkert. Jæja, ef þið gerið ekki neitt munuð þið ekki sjá neitt! Og svo tilraunin verður að fela í sér að þið ákallið fjólubláa logann í ákveðinn tíma á hverjum degi uns þið hafið safnað nógu miklum kröftum í áru ykkar. ...

Fjólublái loginn er undralyf aldarinnar. Það er undraloginn! Og það getur skipt sköpum hvaða leið plánetan Jörðin fer. Það kemur í sama stað niður þótt þið flautið fjólubláa logann, syngið um fjólubláa logann, hoppið og dansið við fjólubláa logann, dansið hringdansa við alla tónlist ykkar við fjólubláa logann, semjið nýja tónlist við fjólubláa logann.

Mér er sama hvað þú gerir. Gerðu leiki úr því! Gerðu maraþon með því! En hvað sem þið gerið, ástvinir, þá verðið þið að vera uppteknir af spennandi og nýstárlegum aðferðum til að koma þessum fjólubláa loga inn á öll svið lífs ykkar og koma honum þangað á þeim tímapunkti sem hann skiptir máli, með vísindum hins talaða orðs – ykkar orð, tunga þín, raddbönd þín og orkustöðvar.[2]

Athvarf

Aðalgrein: Athvarf Arktúrusar og Viktoríu

Athvarf þeirra er á ljósvakasviðinu nálægt Lúanda í Angóla í Afríku.

Aðrar viðtöku- og sendistöðvar þar sem Arktúrus og Viktoría hafa loga í brennidepli (en engin athvörf) eru uppi yfir Ástralíu, Suðurpólnum, Pýreneafjöllum, Síberíu, Viktoríueyju í norðurhluta Kanada og suðurodda Suður-Ameríku.

Sjá einnig

Elóhím

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Arktúrus og Vicktoría”.

  1. Arcturus and Victoria, “Rub the Violet Flame Lamp and See What Happens.” Pearls of Wisdom, 36. bindi, nr. 30, 25. júlí, 1993.
  2. Sem sama.