Heilagur Jósef

From TSL Encyclopedia
Revision as of 10:01, 9 December 2025 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Í öðrum fyrirlesgtri sagði María guðsmóðir okkur að heilagur Jósef „hafi feðrað og nært Kristsbarnið og þannig markað sporin fyrir fiskaöldinni.“ Hin blessaða móðir sagði:")
Other languages:
Saint Joseph, sleeping, an angel flying over him
Draumur heilags Jósefs, Philippe de Champaigne

Saint Germain endurfæddist sem heilagur Jósef, faðir Jesú og eiginmaður Maríu guðsmóður.

Í Nýja testamentinu

Fáar heimildir eru um heilagan Jósef í Nýja testamentinu. Biblían rekur ætterni hans aftur til Davíðs konungs. Þar er einnig sagt frá því hvernig engill Drottins varaði hann við í draumi um að Heródes hygðist drepa Jesú, en Jósef hlýddi viðvöruninni og fór með fjölskyldu sína til Egyptalands og sneri aftur eftir dauða Heródesar. Sagt er að Jósef hafi verið smiður og talið er að hann hafi látist áður en Jesús hóf opinbera þjónustu sína. Í kaþólskri hefð er heilagur Jósef virtur sem verndari alheimskirkjunnar og hátíð hans er haldin 19. mars.

Aðrar frásagnir

Samkvæmt apokrýfu guðspjalli Matteusar um fæðingu Maríu, þegar María varð giftingarhæf, kallaði æðstipresturinn alla ókvænta menn af ætt Davíðs til að færa staf sína að altarinu. Því að Drottinn hafði opinberað honum að „úr staf hvers sem er ... ætti blóm að springa út, og á toppi hans ætti andi Drottins að sitja í dúfulíki, hann ætti að vera maðurinn sem gefin skyldi meyjunni.“

Jósef, sem var orðinn hniginn að aldri, dró staf sinn til baka. Þegar ekkert merki birtist leitaði æðsti presturinn ráða hjá Guði, sem sagði að María skyldi trúlofuð manninum sem ekki hefði lagt fram staf sinn. Þegar Jósef færði staf sinn lenti dúfa á honum og samkvæmt öðrum frásögnum blómstraði hann með blómum og laufum.

Heilagur Jósef með Jesúbarninu, Guido Reni (1620)

Tilbeiðsla við heilagan Jósef

Dulspekingurinn Teresa frá Avila frá sextándu öld var mjög trúföst heilögum Jósef og valdi hann sem verndara reglna sinna. Hún skrifaði:

Ég man ekki eftir að hafa nokkurn tímann beðið hann um neitt sem hann hefur ekki veitt.... Með þessum dýrlega dýrlingi hef ég reynslu af því að hann svarar öllum þörfum okkar og að Drottinn vill að við skiljum að rétt eins og hann var undirgefinn heilögum Jósef á jörðinni — því frá því að hann bar titilinn faðir, var kennari Drottins, gat Jósef gefið barninu skipun — svo gerir Guð á himnum hvað sem hann býður.[1]

Barnæska Krists, Gerard van Honthorst (um 1620)

Heilaga fjölskyldan

Í fyrirlestri sem flutt var 6. maí 1979 sagði að uppstigni meistarinn Jesús hefur borið vitni um að Jósef hafi kennt honum margt fleira en trésmíði:

: „Hann kenndi mér hina helgu iðju, alkemíu heilags anda, að breyta vatni í vín. Sannlega er ég sonur Jósefs, hins mesta alkemíumeistara sem uppi hefur verið. Og vissulega vitnar verk mitt um hagleik hans og blessaða náð móður minnar.“

Þar sem sögulegar heimildir skortir hafa uppstignu meistararnir öðru hverju veitt okkur innsýn í líf hinnar helgu fjölskyldu. Eina slíka sögu mælti María guðsmóðir um munn Marks Prophet árið 1968:

„Ég man morgun einn þegar Jesús var snáði að hann kom til mín með harða spýtu sem hann var að reyna að tálga. Hann vildi fá mig til að segja Jósef að skipta á henni fyrir aðra mýkri og meðfærilegri. Ég tók hann í kjöltu mína og sagði honum að það væri inbyggður eiginleiki trjáviðar að sum tré væru hörð í sér en önnur mýkri. Ég sagi honum að mjúki viðurinn yrði auðveld-lega fyrir hnjaski, og ef hann notaði mjúka viðinn myndi smámyndin sem hann vildi skera út ekki þola álagið sem viðurinn yrði fyrir síðar. Aftur á móti myndi útskurður úr harðviði endast betur.

Ég sagði honum einnig að viðurinn nyti góðs af mótun handa hans og að eini munurinn á mjúka og harða viðnum væri að sá harði reyndi meira á þolinmæði hans. Hann strauk aftur hárið sem hafði fallið fyrir augun og kyssti mig snöggt og blíðlega á báðar kinn-ar. Ég sá votta fyrir tári í öðru auganu þegar hann þaut upp til að halda áfram að skera út í harðviðinn.“[2]

Í öðrum fyrirlesgtri sagði María guðsmóðir okkur að heilagur Jósef „hafi feðrað og nært Kristsbarnið og þannig markað sporin fyrir fiskaöldinni.“ Hin blessaða móðir sagði:

May all of you who are of the Masculine Ray in this life remember his example in all of his lifetimes and know that your stature in God can be modeled after this role model of one who dared to defend Woman, who dared to raise up that Manchild, and stand as the protector not only of a family but of an entire area of a planet, until that one could fulfill his Christhood.[3]

The Youth of Our Lord, John Rogers Herbert (1847)

The mantle of Saint Joseph

Saint Germain has said:

Yes, I AM Saint Joseph, and I walk in the full mantle of my office as protector of Mary and of every mother and every woman and of every child in the earth. And I tell you, beloved, that I play that role. As many in the earth call to me as Saint Joseph, so I respond to that name.

Knowing who I am, therefore, I can be called by any name, any key of any name of any past incarnation. Thus, I have rolled them into one and determined to be called by you merely “Holy Brother,” Saint Germain.[4]

See also

Sources

Pearls of Wisdom, 1988, vol. 1, ch. 2.

Pearls of Wisdom, vol. 24, no. 68, June 1981, endnote 1.

  1. Safnrit heilagrar Teresu frá Avila, 1. bindi, Bók lífs hennar, andlegir vitnisburðir, einræður, þýð. Kieran Kavanaugh og Otilio Rodriguez (Washington, D.C.: ICS Publications, 1976), bls. 79–80.
  2. Mother Mary, “Shaping the Hard Wood,” Pearls of Wisdom, 11. bindi, nr. 9, March 3, 1968.
  3. Mother Mary, “The Karmic Weight of a Planet,” Pearls of Wisdom, vol. 31, no. 27, June 15, 1988.
  4. Saint Germain, “I Am Not Done with Pisces!” Pearls of Wisdom, vol. 35, no. 26, June 28, 1992.