Ússíel erkiengill og tvíburalogi hans

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Archangel Uzziel and his twin flame and the translation is 100% complete.
Other languages:

Ússíel erkiengill og tvíburalogi hans eru erkiengill og kvenerkiengill áttunda geislans. Þó að nöfn erkienglanna sjö séu þekkt, hafa nöfn hinna erkienglanna, þar á meðal þeirra [sem þjóna á] leyndu geislunum fimm ekki verið birt nema nafn Ússíels á áttunda geislanum. Nafnið Ússíel þýðir „styrkur Guðs“.

Ússíel segir:

ÉG ER engillinn sem flýgur um á himnum með hið eilífa fagnaðarerindi.[1] Því að það fagnaðarerindi, mín ástkæru, er samþætting allra sjö geisla Krists-verundarinnar og kirkusafnaðanna sjö og trúarbragða heimsins og sjö innsigla Lífsbókarinnar og sjö innsigla orkustöðva karls og konu.[2]

ÉG ER inngangur að áttunda geislanum þar sem austur og vestur eru eitt. Ég er sá sem ber hið eilífa fagnaðarerindi svo að hinir hundrað fjörutíu og fjögur þúsund geti prédikað það fyrir körlum og konum og börnum jarðarinnar.[3]

Ússíel erkiengill aðstoðar okkur við umskiptin frá geislunum sjö yfir í að ná tökum á leyndu geislunum fimm. Hann kemur með ljós áttunda geisla orkustöðvarinnar, áttablaða leynihólfi hjartans.

Árið 1977 sagði Ússíel:

ÉG ER Ússíel. Ég færi ykkur umskiptin til að ná tökum á hinum fimm leyndu geislum. Áður en þið farið úr sjö til fimm, verðið þið að lúta aga meistaranna á áttunda geisla, þar á meðal meistarans Gátama Búddha og Guðs-móðurinnar. Því þetta er geisli Búddha og Guðs-mæðra sem koma í nafni hinnar Kosmísku meyjar.

Þið veltið því fyrir ykkur hvers vegna þið hafið verið látin undirgengast agaviðurlög Búddha og Guðs-móðurinnar, og stundum veltið þið fyrir ykkur í örvílnun ykkar hvort þessi agaþjálfun muni einhvern tíma taka enda. Jæja, hún endar þegar þið hafið staðist prófraunir ykkar og verðið uppfylling agaþjálfunarinnar sjálfrar. Og þá, á þeirri andrá, getið þið fengið prófskírteini ykkar og innritast í skóla hins volduga Kosmos sem kemur ykkur í kynni við meistara leyndu geislanna fimm.

Mannkynið er enn að ná tökum á geislunum sjö og þess vegna hafið þið ekki heyrt um drottna hinna fimm leyndu geisla. En til þess að ná valdi á því meistarastigi, gætuð þið borið fram nafn hins aldna, Sanat Kúmara, og hinna sjö helgu Kúmara. Og þið gætuð kallað eftir því að ljós leyndu geislanna verði meira áberandi á jörðinni, jafnvel á sama tíma og þið kallið eftir því að ná eigin tökum á áttunda geislanum.

Ástvinur ykkar Lanelló tók vígslu sína á áttunda geislanum eftir sjö ár vist í Colorado Springs í gegnum helgisiði uppstigningarinnar. Margar óuppstignar sálir sem hafa fullkomnað vegferð sína á geislunum sjö gera það á þennan hátt. En ég hvet ykkur til að leitast við að ná tökum á áttunda geislanum og vera áfram í holdinu sem færir mig að upphaflegri forsendu minni.

Þar sem áttundi geislinn ber slíkan styrk uppstigningarelda, verðið þið að stækka hjartaorkustöðina ykkar til þess að halda við áttunda geislanum á meðan þið eruð í efnsilíkamanum! Þið verðið að opna hjartaorkustöð Ameríku! Þið verðið að ná sambandi við bandarísku þjóðina með kenningunni sem gerir henni kleift að vernda hjartað, sérstaklega gegn öllu ómstríðum hljómum vinsælla tónlistarforma sem eru mjög svo skaða hjartsláttinn þar sem sá hjartsláttur er endurómur hins kosmíska hjarta. Þið verðið að kenna íbúum þessarar þjóðar að slökkva á sjónvarpstækjunum sínum, að losa sig við yfirþyrmandi hávaða og áreiti sem stríða gegn hinum efnislegu skilningarvitum sem valda hjartaáfalli og skaða orku þess.

Og þess vegna skorpnar hjartað og myndar þykkan harðlyndan hjúp utan um sig. Annars gæti það ekki þolað álagið jafnvel frá vöggustigi. Og þar sem fólkið skortir ljós, umlykjast hjörtu þess myrkri. Og myrkur í stað ljóss verður vörn orkustöðvar hjartans. Ljúkið þeim upp!

Við gætum sent út geislann þennan morgun, frá hjarta áttunda geislans, til að splundra þessa kölkun í kringum hjörtu þessa fólks. En hverju myndum við áorka? Við myndum gera hjörtu þess berskjölduð og varnarlaus. Og þá myndu mennirnir verða svo viðkvæmir fyrir áföllum heimsins að margir myndu líða af skjá lífsins.

Og því verður keningin að koma fyrst. Þess vegna verður kjarninn að koma fyrst. Þess vegna er hið fjólubláa logahjarta, hið fjólubláa eldhjarta Saint Germains, ívilnun Guðs-frelsisins á þessari öld. Þetta er ástæðan fyrir því að þið heyrið um hið helga hjarta Maríu guðsmóður, hið helga hjarta Jesú og þetta fjólubláa eldhjarta Saint Germains. Það er vegna þess að þessi kynslóð ljósbera hefur komið fram til að ná tökum á orku hjartans fyrir hönd allra bræðra sinna og systra sem hafa slíkan kærleika að bera en traðka samt í fávísi sinn á hinum bljúgu lögmálum sem stjórna flæði orkunnar gegnum þessa helgu miðstöð karls og konu.

Þið sjáið því að þó að ljósherjar kunni að fremja kraftaverk kemur það til lítils ef mannkynið getur ekki staðið undir kraftaverkunum því að það er ekki hagfelld notkun á kosmískri orku. Því að úrlausn tímabilsins; lykillinn að áttunda geislanum, kenningunni, kenningunni sjálfri, dhamma[4] Búddha, fjallræðu Krists, hugleiðingu á hjarta Maríu guðsmóður, kenningunni um þráð fyrir þráð og perlu fyrir perlu, lögmál fyrir lögmál – felst í styrkingu ljóssins í hjarta ykkar.

Verið því dýrkendur viskunnar svo að þið getið útvíkkað kennsluna, orðið kenningin og flutt hana frá hjarta til hjarta.

Ég er Ússíel. Dvalarstaður minn á jörðu er í leynihólfi hjarta þeirra tilbiðjenda sem hafa stundað hugleiðslu leynihólfsins og hafa hreinsað staðinn fyrir komu mína. Ef þið viljið gera mér til geðs í musteri ykkar, undirbúið þá eyju ykkar í smaragðshafinu.[5] [6]

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Uzziel and his twin flame.”

  1. Opb 14:6.
  2. Opb 1:4, 11, 20; 5:1, 2, 5, 9; 6:1; 20:12.
  3. Uzziel Archangel, „The Sign of the Coming of the Eighth Ray of Integration,“ 30. desember 1979.
  4. Dhamma [á palí; dharma á sanskrít]: kosmískt lögmál; kenning Búddha.
  5. Til hugleiðingar í leynihólfi hjartans þar sem tilbiðjandinn sér fyrir sér „perlulega eyju í glitrandi sjó“ og tilbiður þar Drottinn sinn, sjá Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras, bls. 158–67.
  6. Archangel Uzziel with Clara Louise, “You Must Open the Heart Chakra of America,” 8. apríl 1977.