Lífsins bók

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Book of life and the translation is 100% complete.
Other languages:

Lífsins bók getur átt við um nokkur atriði:

1. Skráin yfir þá syni Guðs sem stigu niður af himni til jarðar (Ritað með stórum staf).

Þetta er skrá yfir þá syni Guðs sem stigu niður til jarðar af ýmsum ástæðum — flestir til að fylgja eftir föllnum englum og til að vernda hina nýju rótarkynstofna og börn ljóssins í efninu. Þegar þeir stigu niður tóku Alfa og Ómega upp volduga bók þar sem nöfn þeirra voru skráð og haldið var utan um ferðir þeirra frá þeirri stundu er þeir yfirgáfu altari hins æðsta Guðs.

Vísun í þessa bók er að finna í 12. kafla Daníelsbókar:

Á þeim tíma mun Mikael fram ganga, hinn mikli verndarengill, sem verndar landa sína. Og það skal verða svo mikil hörmungatíð, að slík hefur aldrei verið frá því er þjóðir urðu fyrst til og allt til þess tíma. En á þeim tíma mun þjóð þín frelsuð verða, allir þeir sem skráðir finnast í bókinni.

Hér er átt við sæði Sanat Kumara, afkomendur Krists-sæðisins. Þeir sem eiga nöfn sín skráð í Bók lífsins eru þeir sem stigið hafa niður frá hinni Miklu meginsól sveipaðir dýrðarskýjum; þeir sem þekkja ÉG ER-nærveruna og Guð sinn með sér, og þeir sem beygja kné sín fúslega fyrir Alheimsljósinu og viðurkenna Krist þann — ekki aðeins í Jesú, heldur í sjálfum sér og hver öðrum.

Hið sanna nafn hvers og eins er einnig skráð í bók lífsins. Hinn ástkæri Jesús hefur sagt:

Ég hef mælt fram hið nýja nafn sem enginn maður þekkir nema faðirinn. Því að hið sanna nafn hvers manns, hverrar konu og hvers barns er skráð í bók lífsins og grafið í hinn eldlega kjarna verundarinnar. Og þess vegna skíri ég yður, alla sem einn, í nafni föðurins og sonarins og hins heilaga anda; og ég skíri yður eftir nafninu sem skráð er í bók lífsins. Og þér munuð hljóta það nafn á stundu upprisu yðar,” [1]

Hversu mikilla sannana lögmálið krefst af þér áður en „ÉG ER SÁ SEM ÉG ER“ stígur niður í líkamlegt musteri þitt, fer eftir skránni sem um þig finnst í bók lífsins. Vertu þakklátur fyrir að nafn þitt sé skráð þar. Vertu þakklátur fyrir að engill ljóssins megi koma og segja þér hvað þar stendur skrifað og hvers er krafist af þér, verk eftir verk, til að eyða krafti and-verka Andkrists sem framin voru í fáfræði þinni á lögmálinu.[2]

2. Hin persónulega bók lífsins

Jóhannes postuli ritaði í Opinberunarbókinni 20:12: „Og hinir dauðu voru dæmdir eftir því, sem skrifað var í bókunum, eftir verkum þeirra.“ Vísunin í „bækurnar“ hér á við um hina persónulegu bók lífsins hvers manns, þar sem skráð eru verk hans — jákvætt og neikvætt karma hans.

Vörslumaður skjalanna er vörslumaður safnsins sem geymir bók lífsins hvers manns. Hann er yfirmaður sveitar engla sem kallast skráningarenglar (e. recording angels). Hverri sál sem þróast í tíma og rúmi er úthlutaður skráningarengill sem skráir hvert verk, orð, athöfn, hugsun og tilfinningu. Við lok hvers dags skilar skráningarengillinn skýrslu dagsins til Vörslumanns skjalanna.

Það er á ábyrgð Vörslumanns skjalanna að útvega uppstignum meisturum og Karmadrottnarnir lífshlaupsskrá yfir hvers kyns endurfæðingar einstaklings sem þeir kunna að spyrjast fyrir um. Þessar upplýsingar eru ekki aðeins notaðar við dómsdag sálarinnar, heldur einnig til ráðgjafar og til að úthluta sálunni skyldum og verkefnum frá einu æviskeiði til annars. Lífshlaupsskráin er einnig notuð þegar veittar eru undanþágur (miskunn eða hæfileikar), við vígslur eða þegar skipað er í embætti innan hinnar uppstignu eða óuppstignu helgiveldisraðar hins Stóra hvíta bræðralags.

Hinn 13. október 1972 sagði María guðsmóðir okkur að við gætum leitað til Vörslumanns skjalanna til að skoða þær skrár sem gætu hjálpað okkur að vinna bug á breyskleikum mennskrar vitundar og bera sigur úr býtum: María guðsmóður sagði:

Vörslumaður skjalanna ... mun draga fram úr bók lífsins fyrir þína hönd, ef þú kallar á hann og á Karmadrottnana, þær síður sem þurfa skoðunar við ef þú átt að geta farið með hin réttu áköll.

Bók lífsins er skrá yfir sögu sálarinnar og höfuðbók yfir karmísk reikningsskil hennar. Við berum ábyrgð á hugsunum okkar og tilfinningum, hvötum okkar og gerðum á hverju æviskeiði sem við höfum dvalið á jörðinni síðan við yfirgáfum hinar fornu launhelgar þar sem aldingarðurinn Eden var til staðar. Annaðhvort tökum við og yfirstígum það karma með hinum eyðandi helga eldi Guðs eða hann yfirtekur okkur sem ófarnaður og hamfarir, sem efnahagslegt hrun og kjarnorkustyrjöld, sem sjúkdómar og dauði.

Saint Germain hefur sagt að við getum breytt sögunni. Við þurfum ekki að láta söguna standa óbreytta, hvorki í einkalífi okkar né á heimsvísu. Við getum notað fjólubláa logann til að hverfa aftur í tímann og umbreyta því sem átt hefur sér stað og er ekki af ljósinu. Og þegar því hefur verið umbreytt og við köllum fram hið guðlega mynstur, höfum við í raun breytt sögu okkar. Við höfum umbreytt henni. Hvað Guð varðar, ef við endurtökum ekki þau mistök, þá er þeim endanlega eytt. Þeim er eytt úr bók lífsins og hin sanna guðlega ráðågerð er rituð í staðinn.

Sanat Kumara talar einnig um þessa persónulegu bók lífsins:

Þegar öllum vígslum hins rúbínrauða geisla hefur verið fullnægt, verður það merki um opnun Bókar lífsins með innsiglunum sjö — þitt eigið líf og lífshlaupsskrá. Því þegar öllu er á botninn hvolft getur þú einn opnað þessa bók með innsiglunum sjö. Það er bókin sem geymir lögmál þinnar innstu veru — þig í syninum og í föðurnum og í hinum heilaga anda — þar sem þú uppfyllir fagnaðarerindi þeirra allra þriggja.[3]

3. Hinn persónulegi orsakalíkami

Eins og orsakarlíkaminn er hvers manns lífsbók sem sýnir óyggjandi hvernig hann hefur notað frjálsan vilja sinn til að gæða með krafti Guðs allt hit besta, þá er rafeindabeltið sú bók sem sýnir misnotkun hans á frjálsum vilja með því að sveipa ljósi Guðs orkuhulu.[4]

4. Hið eilífa fagnaðarerindi.

5. Bókin litla“ sem talað er um í Opinberunarbókinni.

Saint Germain segir:

Hin raunverulega merking ritningargreinarinnar þar sem Jóhannes postuli vísar til litlu bókarinnar, sem væri sæt í munni en beisk í maga, [5] tengist skilningi hans á þeirri hugmynd að hann geymdi í sér alheiminn og alheimurinn geymdi hann. Bók lífsins sem talað er um í Opinberunarbókinni[6]er orðasafn Guðs, og orðasafn Guðs umvefur allan alheiminn.

Þar sem hún spannar allt sköpunarverkið, látið engan taka frá öðrum hlut hans eða forréttindi til að njóta alls þess kosmíska sannleika; né láti nokkur mann ræna sjálfan sig þessum stærstu forréttindum lífsins. Að gera það er að taka burt annaðhvort sinn eigin hlut eða annarra, og vissulega mun lögmál Guðs, þá einskorða þann sem það gerir við sama takmarkaða svið og hann hefur sett öðrum.[7]

Sjá einnig

Fil 4:3; Opinb. 3:4, 5; 13:8; 17:8; 20:11-15; 21:27; 22:19.

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, 16 júní 1983.

Elizabeth Clare Prophet, The Astrology of the Four Horsemen, 1. kafli.

Pearls of Wisdom, 35. bindi, nr. 36, 6. september 1992.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation, Orðalisti.

Pearls of Wisdom, 1988, 1. bók, “Prophecy for the 1990s.”

Elizabeth Clare Prophet, 21. apríl 1973.

  1. Jesus, “The New Name and the Baptism by Fire,” Pearls of Wisdom, 16. bindi, nr. 36, 9. september, 1973.
  2. Jesus Christ, “Comfort Ye My People!” Pearls of Wisdom, 30. bindi, nr. 79, 18. desember 1987.
  3. Elizabeth Clare Prophet, The Opening of the Seventh Seal: Sanat Kumara on the Path of the Ruby Ray, 29. kafla.
  4. Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of the Higher Self, volume 1 of the Climb the Highest Mountain® series, 6. kafli.
  5. Opinb 10:19.
  6. Opinb 22:19.
  7. Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation, 1. bók, 6. kafli.