Hugur sjálfshyggjunnar

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Carnal mind and the translation is 100% complete.

Hið mennska sjálf, mannsviljinn og mannleg greind; sjálfsvitund án Krists; dýrslegt eðli mannsins, kallað vélræni maðurinn. Vélræna hugtakið kom frá meistaranum R; jaðar-búinn í dulspekilegri hefð. Páll postuli nefndi þetta fyrirbæri “hyggj[u] holdsins [sem] er fjandskapur gegn Guði, með því að hún lýtur ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki..”[1]

Huglíkaminn var myndaður til að vera bikar fyrir huga Guðs í gegnum Krist. Þegar hégómi veraldlegrar visku fyllir huglíkamann veltur hyggja holdsins ímynd Krists úr sessi. Þar til hann örvast er hann áfram starfstæki holdsins og er skírskotað til hans sem „lægri“ huglíkamans – hins lægri, takmarkaða, sjálfstakmarkandi dauðlega hugar – í mótsögn við „æðri“ hugann eða huga Krists.

Þegar full blómstrun Krists-vitundarinnar á sér stað getur lægri huglíkaminn orðið að kristalkaleik fyrir lífgefandi útgeislun hans. Þar til sálin kemst í samband við huga Krists („Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var,“[2]) hefur hún ekki vængi ljóssins til að fljúga til hjarta og huga Guðs né getu til að feta braut lærisveinsins undir Alheims-Kristi og Búddha sem er Heimsdrottinn.

Sjá einnig

Hið mennska sjálf

Jaðar-búinn

Vélræni maðurinn

Til frekari upplýsinga

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Enemy Within

Til að fræðast um kenningu Djwal Kúls um “Áskoranir hins holdlega huga,” sjá Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Gátama Búddha, Pearls of Wisdom, 26. bindi, nr. 18, 1. maí, 1983.

  1. Róm. 8:7.
  2. Fil. 2:5.