Category:Náðarmeðul
Uppstignu meistararnir uppstignu kenna að náðrmeðulin sjö (sakramentin) samsvari geislunum sjö:
- Skírn: fyrsti geislinn (blár, hálsorkustöð)
- Heilög kvöldmáltíð: annar geislinn (gulur, hvirfilorkustöð)
- Ferming: þriðji geislinn (rauðgulur, hjartaorkustöð)
- Iðrun (skriftir): fjórði geislinn (hvítur, mænurótar-orkustöð)
- Smurning sjúkra, eða hinsta smurning: fimmti geislinn (grænn, Al-sjáandi auga/þriðja augað)
- Hjónaband: sjötti geislinn (rauðfjólublár og gylltur, magagrófar-orkustöð/sólarplexus)
- helgar reglur: sjöundi geislinn (fjólublár, sálarseturs-orkustöðin)
Náðarmeðulin í lífi barns
Skírnin er fyrsta sakramentið sem kemur til okkar fyrir tilstilli fyrsta geislans. Skírnin er uppruni hinnar helgu köllunar, hins helga atburðar að vígja sálina vilja Guðs. Það er sú stund þegar sálin er gegnsýrð af þeirri möntru sem Jesús talaði um þegar hann steig niður í mynd sinni í Betlehem. „Sjá, ég er kominn til að gjöra vilja þinn, ó Guð.“[1]
Sumir hafa þá hugmynd að ekki sé hægt að skíra lítið barn í fangi [móðurinnar] vegna þess að það geti ekki meðtekið þessa möntru að fullu; en það er mantra sálarinnar. Það er mantran sem er mælt. Það er skuldbinding viljans við endurholdgunina, þegar sálin er send frá Guði til jarðar. Og þegar hún er komin, þá er sú kynning í musterinu, sú framkoma til skírnarinnar, studd af foreldrunum sem standa með sálinni á innri stigum í skuldbindingunni um að „gera vilja þinn, ó Guð“.
Annar heilagi atburðurinn í lífi þess sem leitast við að íklæðast brúðarklæðunum er sakramenti fyrstu heilögu kvöldmáltíðarinnar. Samneyti eða sammáltíð þýðir að „sameinast“ Krists-huganum fyrir tilstilli virkjunar hvirfilorkustöðvarinnar. Þetta sakramenti fer fram um sjö ára aldur. Það er í fyrsta skipti sem tekið er á móti brauðinu og víninu. Það er upphaf þeirrar helgiathafnar að draga til sín aukinn hluta hins þrígreinda loga Jesú. Það er að íklæðast líkama og blóði Krists.
Við vitum að við sjö ára aldur verður mikið innstreymi ljóss frá ÉG ER-nærverunni, efling hins þrígreinda loga á altari hjartans. Og þannig er hin heilaga kvöldmáltíð, þessi heilagi atburður sem við höldum hátíðlegan aftur og aftur, ætíð sú stund þegar Kristur bætir sínum loga við okkar eigin sem loga viskunnar, sem loga Guðs-hugans, til þess að efla okkar eigin Krists-vitund.
Þriðja sakramentið, fermingin, fer fram um tólf ára aldur og er ætlað til einstaklingsbundinnar staðfestingar á hinu yfirlýsta lögmáli og kenningunum. Þetta er hliðstæða þess þegar Jesús gekk inn í musterið og ræddi við fræðimennina, kenndi þeim og færði þeim lögmálið. Það markar þá stund þegar sálirnar fara að standa á eigin fótum og verða færar um að miðla kenningunum.
Fermingin er logi kærleikans vegna þess að hún krefst þess að gefa af sjálfum sér af óeigingirni. Hún er máttur heilags anda sem kemur fram við tólf ára aldur þegar barnið fer að finna fyrir fyrstu bylgjum endurgjaldslögmálsins (karma), og þegar barnið þarf að takast á við afleiðingu fyrri gjörða (uppskeru ávaxtarins). Besta leiðin fyrir barnið til að takast á við þetta er í gegnum þekkingu á lögmálinu og með visku lögmálsins.
Þannig stígur barnið frá trú skírnarinnar og von fyrstu heilögu kvöldmáltíðarinnar inn í kærleika fórnarlundarinnar í fermingunni, sem gerir því kleift að flæða með Guði. Fyrir vikið mun barnið ekki hraka eða dragast aftur úr þegar eigið karma kemur fram.
Við sjáum að þríþætt virkni þessara fyrstu þriggu sakramenta er ætluð til að hjálpa sálunni að búa sig undir hin erfiðu unglingsár og fyrstu lotur endurgjaldslögmálsins við tólf ára aldurinn.
Heimildir
Elizabeth Clare Prophet, 5. desember 1976.
- ↑ Heb 10:7, 9.
Pages in category "Náðarmeðul"
The following 2 pages are in this category, out of 2 total.