Hilaríon
Hilaríon er chohan-meistari fimmta geisla lækninga og sannleika. Hann er yfirstjórnandi Sannleiksmusterisins á ljósvakasviðinu nálægt Krít, Grikklandi.
Fyrri jarðvistir
Æðstiprestur í Sannleiksmusterinu
Hilaríon var æðstiprestur í Sannleiksmusterinu á Atlantis, og hann flutti sannleikslogann ásamt gripum musterisins til Grikklands stuttu áður en álfan sökk. Móttöku- og sendistöð sannleikans sem hann kom á varð beinir fyrir véfréttina í Delfí, boðbera sannleikans sem þjónuðu undir stjórn Pallas Aþenu í hundruð ára þar til að svartir prestar komust inn í delfísku regluna og spilltu sannleikanum sem fram hafði komið. Bræðralagið afturkallaði síðan þessa þjónustu við mannkyn þar sem fólk gat ekki gert greinarmun á sannleika og villu.
Heilagur Páll
► Aðalgrein: Heilagur Páll
Hilaríon endurfæddist seinna sem Sál frá Tarsus, sem varð Páll postuli. Hilaríon hefur rifjað upp fyrir okkur kynni sína af Kristi á því æviskeiði:
Við kölluðum hann Jesú Krist, og hann kallaði okkur eins og þið eruð kölluð í dag. Ég minnist þess að hann kom til mín og styrkti mig með Orði sínu. Samt auðmýkti hann mig fyrst á leiðinni til Damaskus, þá auðmýkingu sem ég þurfti sárlega á að halda til þess að ég gæti beygt mig fyrir Krists-loga mínum sem hann opinberaði mér. Hann gaf mér einnig uppfræðslu í hugleiðslu á loganum svo ég gæti gengið í fótspor hans á fimmta geisla vísinda og lækninga og postuladóms og boðunar Orðsins.
Oft var mér innanbrjósts eins og hendur og fætur og hjarta Herkúlesar sem glímdi við niðursveiflur jarðar vegna trúleysis, efahyggju, vitsmunalegs drambs þeirra [guðlausu] og heift gegn spámönnunum og hinum heilaga Guðs [syni] sem svo nýlega kom á meðal okkar. Samt sem áður minnist ég þess að ég var einu sinni talinn meðal þeirra. Eftir að hafa einu sinni verið svo drambsamur og svo harðsnúinn gegn vilja Guðs brennir að eilífu í minningu minni hjálparleysi okkar sem verkfæri Guðs. En hinn mikli styrkur Orðsins kemur, ástvinir mínir, á stundu afturhvarfsins til trúarinnar. Það er ekki þegar stundarkallið kemur heldur við stund umsnúningsins þegar svarið berst úr djúpi sálarinnar. Það er flæðið, það er eftirgjöfin, það er uppgjöfin. ...
Sál mín þekkti hann eins og forðum og minningin um hið innra heit rifjaðist upp í ytri huga mínum. Það var ekki í fyrsta skipti sem ég sá Drottin Krist. Ég hafði séð hann áður en ég endurholdgaðist og samt varð ég að vinna mig í gegn þessu stolti, þessu karma á fimmta geisla [sem einkenndist] af miklum lærdómi, mikilu námi og yfirburðar í félagslegri og vitsmunalegri stöðu sem ég hafði gagnvart frumkristnum mlönnum. Og svo var það mitt eigið karma sem var yfirvofandi þar sem ég stóð gegn kölluninni.[1]
Drottinn minn fór á eftir mér þegar ég var á leiðinni til Damaskus. Já, ástvinir, ég var blindaður, ekki af ljósi hans heldur af eigin synd og alkemískri umbreytingu ljóss hans sem smeygði sér í gegnum syndarskrána í veru minni. Þannig var mér umsnúið af anda Drottins þegar Jesú Krist birtist mér í öllu sínu veldi.[2]
Um tíma eftir að Páll snerist til trúar á Krist hörfaði hann inn í arabísku eyðimörkina. Í Galatabréfinu 1:16–18, segir Páll: „... . Ekki fór ég heldur upp til Jerúsalem til þeirra sem voru postular á undan mér, heldur fór ég jafnskjótt til Arabíu og sneri svo aftur til Damaskus. Það var fyrst eftir þrjú ár að ég fór til Jerúsalem."
Ritskýrendur hafa oft velt því fyrir sér hvað Páll hafði fyrir stafni á meðan hann dvaldi í eyðimörkinni. Hilaríon hefur útskýrt að Jesús hafi tekið hann „með öðrum til athvarfs síns uppi yfir Landinu helga og í Arabíu. Ég hef verið þarna og lært af honum. Og þetta var eyðimerkurdvöl mín í hugleiðslu með honum, upp numinn í fíngerðari líkama mínum og þjálfaður beint frá hjarta til hjarta."[3]
Vegna þess að Páll postuli hafði á þeirri ævi samþykkt grýtingu heilags Stefáns (fyrsta kristna píslarvottsins) og tók virkan þátt í að ofsækja og drepa kristna menn steig hann ekki upp við lok þess lífs. Að taka líf í einni endurholdgun krefst oft annarrar endurfæðingar til þess að jafna það karma.
Hinn uppstigni meistari Hilaríon hefur útskýrt hvers vegna hann þurfti að endurholdgast aftur fyrir himnaför sína:
Munið því að við, postular Krists, vorum undirlagðir sáttmála lögmálsins þar sem það var áskilið að maður jafnaði 100 prósent af karma sínu áður en sálin gæti stigið upp í ljósinu.[4] Þannig þurfti ég að friðþægja í lífi mínu sem Páll postuli og í næsta lífi mínu sem heilagur Hilaríon fyrir þær syndir sem ég hafði drýgt áður en ég tók á móti Drottni mínum.[5]
Heilagur Hilaríon
► Aðalgrein: Heilagur Hilaríon
Þannig að Jesús, sem reisti Pál til að vera postuli hans, styrkti hann í síðístu holdtekju sem heilagur Hilaríon (f. Kr.D. 290 til 372), stofnandi klausturhalds í Palestínu.
Hilaríon varði tuttugu árum í eyðimörkinni til að undirbúa trúboð sitt og gerði sitt fyrsta kraftaverk — Guð sem vann í gegnum hann, læknaði konu af ófrjósemi sem gerði henni kleift að fæða son. Frá þeim degi gegndi hann lækningaþjónustu.
Hann læknaði börn af hita með því að ákalla nafn Jesú, læknaði lömun og rak marga djöfla út. Mannfjöldi safnaðist saman til að læknast af sjúkdómum og óhreinum öndum. Þeir fylgdu honum jafnvel til eyðilegra og afskekktra staða. Hann reyndi margsinnis að fela sig, en þeir fundu hann alltaf og neyddu hann til að fylgja sinni sönnu köllun, fyrir kærleika Jesú.
Jeróme sem ritaði ævisögu um dýrlinginn veitir flestar upplýsingar sem við vitum um hann, skráir:
Tíðni tákna og undra hans á Sikiley dró að honum sjúkt fólk og trúaða í fjöldatali; og einn af æðstu mönnum læknaðist af blóðsykri sama dag sem hann kom og bauð Hilaríon ótakmarkaðar gjafir; en hann hlýddi orði frelsarans: „Þér hafið þegið ókeypis; gefið frjálslega.“
Í tilefni af miklum jarðskjálfta stóð ógn af sjónum að hann myndi leggja bæinn í rúst. Samkvæmt Jerome, flæddi hafið yfir mörk sín; og eins og Guð væri að hóta öðru flóði, eða allt væri að snúa aftur til óreiðunnar í upphafi, slengdust skip upp bratta kletta og héngu þar.“
Þegar þeir sáu þessi vatnsföll koma í átt að ströndinni hlupu bæjarbúar og náðu í Hilaríon, og „eins og þeir væru að leiða hann til orrustu, settu þeir hann á ströndina. Og þegar hann hafði merkt þrjú krossmerki á sandinum og teygt hendur sínar á móti öldunum, þá er ótrúlegra en orð fá lýst að hafið svall og reis upp fyrir framan hann og geisaði síðan lengi, eins og það væri ólgandi yfir hindruninni, féll aftur, smátt og smátt, inn í sjálft sig.
Undir lok lífs síns hörfaði dýrlingur fólksins, því að það hafði slegið eign sinni á hann, á stað á Kýpur sem var svo afskekktur að hann var sannfærður um að enginn myndi finna hann þar. Það var meira að segja reimt — fólkið myndi óttast að nálgast, hugsaði hann. En lamaður maður náði að skjögra þangað, fann Hilaríon, var læknaður og lét atburðinn berast.
Og svo var það, að hinn heilagi endaði daga sína í þeim dal, og margir komu til að sjá hann. Eftir að hann lést grófu fylgjendur hans hann þar, eins og hann vildi, en innan nokkurra mánaða gróf nánasti lærisveinn hans, Hesykíus, gröf hans upp á laun og flutti lík hans til Palestínu.
Hinn uppstigni meistari Hilaríon deildi með okkur opinberun sem hann fékk í þessari síðustu endurholdgun sinni á jörðu sem hinn mikli græðari og einsetumaður sem bjó í eyðimörkum Palestínu og Kýpur. Hann sagði:
ÉG ER Hilaríon! Ég hef gengið á eyðimerkurstöðum! Ég hef leitað skjóls í eyðimörk lífsins, en mannfjöldinn kom á eftir mér í eyðimörkina þar sem ég lifði í síðustu endurholdgun minni sem Hilaríon. Þeir komu út af heilsulindinni; þeir komu vegna kærleikans. Þó ég hefði hopað, fylgdu þeir mér eftir. Og svo sagði Drottinn mér að sannleiks- og lækningagáfan væri ætluð til að deila, aðeins til að gefa af sér.[6]
Hilaríon hafði þá gáfu að lækna í ríkum mæli. Sannarlega miklir græðarar mannkyns, sem geta veitt sálum úrlausn og heilleika með handarsnertingu eða með einfaldri tilskipun: „Verði þú heill! eru sendir frá Guði. Auðkenni hins sanna læknis er að hann gengur í skugga hinnar voldugu ÉG ER-nærveru sinnar, að hann er auðmjúkur frammi fyrir Guði og mönnum og að hann gefur Guði alla dýrð fyrir verkin sem Guð fremur i gegnum hann, vitandi að hann er aðeins verkfæri heilags anda. Þessir heilögu guðsmenn afsala sjálfum sér og þeir munu ekki endilega segja ykkur að þeir hafi lækningagáfu.
Boðskapur Hilaríons nú á dögum
Hægt er að spila laglínuna „Áfram, Kristsmenn, krossmenn“ til að draga ljóma Hilarions inn í þennan heim. Í gegnum þessa tónlist getum við fundið fyrir sama eldmóði og ákefð í dag og gerði Páli postula kleift fyrir tvö þúsund árum að hvetja frumkristna menn til að stofna kirkju Krists í Litlu-Asíu og að lokum um allan hinn þekkta heim. Hann veitir okkur það hugrekki sem þarf til að uppfylla köllun okkar í dag með þessum orðum:
Því segi ég, postular hins hæsta Guðs, verið á veginum! Það er breyting á kraftsviðum, breyting á takti stígvélanna sem veldur skjálfta í hnjám! ... Vinstri, hægri, vinstri, hægri, takið annað skref, áfram gakk! Þið munuð komast að því hvað Guð vill að þið gerið. Engin þörf á að sitja og spá í spilin! Það er verk að vinna — vinna í verkum heilags anda. Það er gleðin yfir þjónustunni sem er hið sanna bræðralag og hið sanna samfélag.
Finnið hvað Guð vill að þið komist að um ykkur sjálf með því að sökkva ykkur niður í hið mikla kosmíska flæði, áframhaldandi þjónustuflæði. Finnið út hvað felst í kennslunni með því að lifa eftir kenningunni. Og komist að því hvað við höfum fyrir ykkur á Krít sem viðfangsefni okkar sem fulltrúar sannleikans.[7]
Athvarf
► Aðalgrein: Sannleiksmusterið
Bræðralag sannleikans í athvarfi Hilaríons uppi yfir Krít notar loga lækninga, vísinda og stöðugleika í brennidepli þar. Þeir vinna með þeim sem hafa orðið fyrir vonbrigðum með lífið og trúarbrögðin og með samferðamenn sína sem hafa rangtúlkað eða mistúlkað Sannleikann og þannig eru þeir orðnir trúleysingjar eða efasemdarmenn.
Bræðurnir á Krít vinna einnig með læknum og vísindamönnum og aðstoða þá við rannsóknir þeirra. Þið getið ákallað Hilaríon fyrir lækningu og heilun, fyrir afturhvarfs sálna og fyrir afhjúpun sannleikans í fjölmiðlum.
Sjá einnig
Sjá Emerald-teal ray til að fá sérstaka lækningu frá Hilarion.
Til frekari upplýsinga
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays
Elizabeth Clare Prophet, Hilarion the Healer: The Apostle Paul Reborn
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Hilarion”.
- ↑ Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays, 2. bók, bls. 171–73.
- ↑ Hilarion, "The Revolution of Truth," {{POWref|36|45|, 3. október, 1993} }
- ↑ Hilarion, "Preach the Gospel of Salvation in Every Nation!!" Pearls of Wisdom, 33. bindi, nr. 39, 7. október, 1990.
- ↑ Frá innsetningu nýja sáttmálans snemma á tuttugustu öld er hægt að stíga upp með að hafa jafnað að minnsta kosti 51 prósent af karma, en sá hluti sem eftir er er þá jafnaður á innri stigum eftir uppstigninguna.
- ↑ Hilarion, "The Revolution of Truth."
- ↑ Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays, 2. bók, bls. 181.
- ↑ Ibid., bls. 185.