Athvarf Jófíels og Krístínar

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Jophiel and Christine's retreat and the translation is 100% complete.
Other languages:
Landamærastöð á Silkileiðinni nálægt Lanchow

Athvarf erkiengilsins Jófíels og Kristínar er í ljósvakaríkinu uppi yfir sléttum Mið-Kína, sunnan við Kínamúrinn nálægt Lanchow.

Hér hefur guli upplýsingarloginn verið jarðtengdur frá upphafi fyrstu gullaldanna á jörðinni sem hafði áhrif á gula kynstofninn við Gulána (Kína) eins og glöggt má greina í visku Konfúsíusar, Laó Tsu og siðmenningu Kína til forna. Hún reis til hárra hæða löngu áður en það vottaði fyrir siðmenningu á Vesturlöndum. Í þá daga héldu valdhafar Kína dulrænu sambandi við yfirstjórnendur í athvarfi Jófíels. Svo lengi sem þessir vígslumenn höfðu umboð himnaríkis – guðlegan rétt til stjórnunar – og stjórnuðu landinu samkvæmt því, þá óx og dafnaði siðmenning Kína undir geisla hinnar gullnu sólar kosmískrar visku.

Hin miklu vísindi sem komu fram í Kína til forna urðu einnig fyrir áhrifum frá athvarfi Elóhímanna Kyklópeu og Virginíu. Samanlagt hafa áhrif þessi leitt til speki Kína og hugvits kínversku þjóðarinnar. Hógværð Kínverja, fjölskyldugildi og gagnkvæm þjónustulund má rekja til athvarfs Kúan Yin uppi yfir Peking þar sem logi miskunnarinnar er rótfestur.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Jophiel and Christine’s Retreat”.