Þöglu árin í ævi Jesú

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Lost years of Jesus and the translation is 100% complete.
Other languages:
caption
Jesú á leið til Ladakh á æskuárum sínum

Það er engin heimild í Biblíunni um hvað Jesús hafði fyrir stafni frá tólf ára aldri, þegar hann var í musterinu í Jerúsalem að ræða við rabbína-presta, fram til þrítugs þegar hann birtist við ána Jórdan til að taka skírn. Þessi ár á milli – hin svokölluðu „þöglu ár“ – eru mikilvægustu árin í lífi Jesú vegna þess að á þeim árum varð hann sá sem hann var er hann undirbjó sig fyrir hina palestínsku köllun sína.

Jesús fæddist líklega á árunum á milli 8 f.Kr. og 4 e.Kr., varði bernskuárum sínum í Palestínu og gæti hafa flutt til Memfis í Egyptalandi stuttu eftir fæðingu sína og búið þar í þrjú ár. Margar goðsagnir frá Bretlandseyjum greina frá því að afabróðir hans Jósef af Arímaþeu, tinkaupmaður með skipaflota, hafi reglulega siglt til Bretlandseyja og farið með hann til Glastonbury á unga aldri, á aldrinum sjö til tólf ára, að mennta sig við Drúida-háskólana sem voru í miklum blóma á þessum tíma.

Við fregnum af honum næst í musterinu tólf ára að aldri í tilefni páskanna og síðan vitum við ekki meira um hann í Biblíunni fyrr en um þrítugt. Fræðimenn hafa gert ráð fyrir að hann hafi búið í Palestínu á þessum tíma að fást við smíðar. Hins vegar eru engar staðreyndir til að styðja þá kenningu.

Sannanir frá búddhískum handritum

Í fornu búddhísku handriti segir svo frá að Jesús hafi varið þessum „þöglu árum“ í austri. Þessir textar voru upphaflega skráðir á palí, heilögu tungumáli Þeravada búddhamanna. Síðar voru þau þýdd á tíbetsku. Rússneskur blaðamaður, Nicolas Nótóvitch að nafni, fann handritin í nóvembermánuði 1887 í Hímis, búddhaklaustri nálægt Leh í Ladakh (Litlu-Tíbet). Árið 1894 gaf Nótvitch út þýðingu á þessum texta sem „Ævi heilags Issa“.

Hugsanlegar leiðir sem Jesús ferðaðist um til Austurlanda á hinum "þöglu árum" sínum"

Samkvæmt handritunum fór Jesús á þrettán ára aldri frá Jerúsalem með kaupmönnum í ferð til Sind, sem er svæði í núverandi suðaustur-Pakistan í neðri Indus-árdalnum, „með það að markmiði að fullnuma sig í hinu helga orði og nema lög hinna miklu Búddha. Fjórtán ára fór hann yfir Sind. Síðan kom hann sér fyrir meðal Aríanna.

Frægð Jesú breiddist út og Jains-trúarmenn báðu hann að dvelja hjá sér en hann fór í staðinn til Juggernaut á Indlandi „þar sem hvítu Brahma-prestarnir tóku fagnandi á móti honum“. Prestarnir „kenndu honum að lesa og skilja Veda-ritin, að lækna með bænum, að kenna, að útskýra hin helgu rit fyrir almenningi, að reka út illa anda úr andsettum mönnum og endurheimta geðheilsu þeirra. Á aldrinum fjórtán til tvítugs varði Jesús sex árum í Juggernaut, Rajagriha, Benares (Varanasi) og öðrum helgum borgum.

Að lokum lenti Jesús í átökum við Brahmína og Kshatría (presta- og hermannastéttir) vegna þess að hann kenndi hinum lægri stéttum helgirit. Óvinir hans lögðu á ráðin að taka hann af lífi. Um tvítugt sá hann sitt óvænna og yfirgaf Juggernaut að næturlagi og fór til fjallsróta Himalajafjalla í suðurhluta Nepal, fæðingarstaðs Gátama Búddha. Á aldrinum tuttugu og eins til tuttugu og sjö ára varði Jesús sex árum í Nepal þar sem hann náði tökum á Palí-málinu og „fullnumaði sig í að útskýra hin helgu rit."

Samkvæmt viðtekinni hefð ferðaðist Jesús einhvern tíma á meðan hann dvaldi í Austurlöndum til Ladakh, Rajputana og Kabúl í núverandi Afganistan. Á milli tuttugu og sjö og tuttugu og níu aldurs fór hann frá Himalayafjöllum og ferðaðist vestur á bóginn og boðaði guðsorð á leiðinni. Hann fór í gegnum Persíu þar sem hann ávítaði Saraþústra-presta fyrir falskenningar sínar sem fyrir vikið vörpuðu honum á dyr í von um að hann yrði villidýrum að bráð. Loksins, tuttugu og níu ára að aldri sneri hann aftur til Palestínu fullbúinn fyrir köllun sína.

Mikilvægi þöglu áranna

Á þessum þöglu árum fetaði Jesús agabraut lærisveinsins þar sem hann hafði vitringa Austurlanda að leiðarljósi. Hann leitaðist við að fullkomna huga sinn og hjarta. Þótt hann væri fæddur avatar (holdtekja guðdómsins) varð hann samt að taka út sinn manndóm. Jesús varð að ganga hina andlegu braut til að ná samþættingu sálar sinnar við Orðið til undirbúnings fyrir skírn sína, ummyndun, krossfestingu, upprisu og uppstigningu og hann varð að vinna að því að meðtaka og innlima fyllingu Krists-verundar sinnar. Og ef hann þurfti að gera það verðum við einnig að fylgja breytni hans.

Hinn uppstigni meistari El Morya bendir á að þöggun kirkjunnar á þessari vitneskju um hin þöglu ár Jesú hafi „skaðað yngri kynslóðina meira en nokkuð annað vegna þess að hún hefur átt engan að til að jafnast á við frá tólf til tuttugu og níu ára aldurs (frá því að Jesús var að vaxa úr grasi). Á þessum mjög svo mikilvægu árum æskunnar frá tólf til átján ára aldurs þegar allar byrðar og freistingar fullorðinsáranna hellist yfir hana hefur hún ekki haft fyrir sjónum fyrirmynd þessa sanna meistara sem varð til þess kallaður að vísa ungdóminum veginn.“[1]

Sjá einnig

Issa

Jósef af Arímaþeu

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, The Lost Years of Jesus: Documentary Evidence of Jesus’ 17-Year Journey to the East

Hartmann Bragason, Austurlenskar rætur kristninnar. Upprunalegar kenningar frumkristninnar og guðfræði nýja tímans. Bræðralagsútgáfan, 2022.

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, 4. október, 1987.

Elizabeth Clare Prophet with Annice Booth, Mary Magdalene and the Divine Feminine.

  1. El Morya, Pearls of Wisdom, 25. bindi, nr. 70.