Míka

Míka er einingarengill, sonur Míkaels erkiengils. Míka og hersveitir hans þjóna til að gæta einingar Krists-vitundar alls mannkyns. Viðfangsefni hans er að efla frið og sátt um allan heim.
Með Ísraelsbörnum
Míka var engillinn sem yfirskyggði Ísraelsmenn á eyðimerkurgöngum þeirra. Hann birtist Móse og aðstoðaði hann í fjörutíu ára dvöl Ísraelsmanna í eyðimörkinni. Hann klauf Rauðahafið og beindi [til þeirra] eldstólpanum að nóttu; hersveitir hans voru ský vitnisburðarins að degi.[1]
Þú getur séð Míka fyrir þér í þessu hvíta eldskýi sem fylgdi Ísraelsmönnum. Ljóskóróna Míka, eða geislabaugur, gefur frá sér gífurlegan styrk blás ljóss en klæði hans beina brennandi rauðgula kærleikanum að bláu eldingunni sem hann beitir í þágu frelsis mannkynsins.
Í Valley Forge
► Aðalgrein: Sýn Washingtons
Á löngum vetri í Valley Forge birtist Míka George Washington í sýn sem boðaði þrjár miklar hættur sem myndu steðja að bandarísku þjóðinni — byltingarstríðið, stríðið milli ríkjanna og átök í þriðja heiminum. Samkvæmt frásögn Anthony Sherman af þessari sýn sagði Washington að honum hefðu verið sýndir íbúar Bandaríkjanna „í bardaga hver gegn öðrum. Þegar ég hélt áfram að horfa sá ég bjartan engil, á enni hans hvíldi ljóskóróna, sem á var teiknað orðið „Eining“, með bandaríska fánanum sem hann setti á milli sundraðrar þjóðar og sagði: „Munið að þið eruð bræður.“ Íbúarnir köstuðu vopnum sínum frá sér, urðu vinir á ný og sameinuðust um þjóðarfánann.“[2]
Þjónusta hans nú á dögum
Míka gætir einingar fimmtíu ríkja Bandaríkjanna og örlög þjóðarinnar. Hann kemur fram og færir fram lögmálsarfleifð ættfeðranna, verndara lífsins og föðurlandsvina allra alda. Hann heldur fast við hugmyndina um sameiningu Ísraelsbarna við endurkomuna. Míka, andi einingar, hefur haldið við Bandaríkjunum sem þjóð fimmtíu fullvalda ríkja.
Míka segir: „Þið eruð algjörlega undir ósigrandi krafti Guðs komin sem er sláttur hjarta ykkar. Þess vegna ætti hjarta ykkar að slá með hjörtum engla í alheimsslætti einingar.“[3] Þið getið beðið Míka og einingarengla hans að ganga ykkur við hlið og hjálpa ykkur að sigrast á hindrunum í vegi fyrir innri einingu ykkar og einingu ykkar við aðra. Biðjið hann að setja Rafræna nærveru sína yfir ykkur. Bjóðið honum að yfirskyggja ykkur og sýna ykkur hvernig það er að vera vaggað í loga einingar.
Míka sagði eitt sinn að hver einstaklingur yrði að „standa vörð hverja stund við eigin dyraþrep til að halda húshaldi sínu ljúfu og gera hjarta sítt að gátt lofgjarðarinnar, þar sem dýrð einingar er ofar öllu öðru.“[4] Til að standa vörð til verndunar einingar verðum við að byrja á okkur sjálfum og síðan færa okkur yfir á svið sveitafélaga okkar og þjóða. Eins og Gandhi eitt sinn sagði: „Þú verður að vera breytingin sem þú vilt sjá í heiminum.“
Uppsprettur sundrungar á landsvísu munu ekki hverfa á einni nóttu. Samræmt átak þarf til að vinna bug á þeim. Viðvarandi áköll til Mikaels erkiengils og sonar hans, Míka, er áskilið. Fjólublár logi í miklum mæli er þörf til að umbreyta ummerkjum og sársauka og sárum fortíðarinnar.
Við getum veitt heiminum mikla þjónustu ef við beinum bænum okkar og fjólubláum logafyrirmælum að aðstæðum þar sem sundrung ríkir. Við verðum líka að vera logandi fyrirmyndir einingar og samfélags þar sem við erum einmitt niður komin.
Míka hefur staðið á bak við „Hugleiðingu um einingu“ sem við getum veitt til að hjálpa til við að leysa úr átökum.[5] “Ritual for the Creation of the Cloud” („Helgiathafnir fyrir sköpun skýsins“) eftir Saint Germain geta einnig verið afar áhrifaríkar til að leysa bæði persónuleg og alþjóðleg vandamál.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Míka.”
- ↑ 2. Mós 13:21–22; 14:21–30.
- ↑ Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation, bls. 142–51.
- ↑ Elizabeth Clare Prophet, “A Meditation for Unity” („Hugleiðing um einingu“), Pearls of Wisdom, 41. bindi, nr. 44, 1. nóvember 1998.
- ↑ Sama heimild.
- ↑ Sama heimild