Translations:Gold/9/is
Líkamsmusterin þín verða að aðlagast tíðnisviði gulls. Börnin þín verða að aðlagast tiðnisviði þess. Og þess vegna fer vel á því að þau beri nisti með undraverkaorðu af hinni ástfólgnu Maríu guðsmóður sem beinir ekki aðeins gullsvitund minni heldur einnig gullsvitund hinnar guðdómlegu móður með vernd hennar og í rafrænni nærveru meyjarmóðurinnar en gullsvitund hennar gat tekið á móti hinu guðdómlega sveinbarni. Og í gegnum þetta gull, sjáið þið, jarðtengjum við hinn flekklausa getnað alheimsmeyjunnar þar sem börn ykkar og þið sjálf getið innra með tekið á móti í hjartaloga ykkar sannri fæðingu hins guðdómlega sveinbarns, Krists-vitundarinnar á þessari öld.