Translations:Lord Maitreya/23/is

From TSL Encyclopedia

Hvar sem þessar launhelgar hafa verið eyðilagðar drógu uppstignu meistararnir sem styrktu þessa loga og helgu dóma þá til sín upp á ljósvakasviðið. Hér eru lærisveinar þeirra þjálfaðir á milli æviskeiða og í fíngerðari líkömum sínum (í svefni eða í uppljómunarástandi) til að þeir geti öðlast þá guðlegu sjálfsþekkingu sem Saint Germain kom á legg enn á ný á tuttugustu öld en þangað til hafði hún ekki verið aðgengileg mannkyninu í miklum mæli á efnissviðinu í aldir. Maitreya hefur útskýrt að á þessum tíma hafi umheimurinn sjálfur orðið að athvarfi þar sem hver maður mun taka vígslur sínar og, með því að standast þær, öðlast sitt eilífa frelsi, uppstigningu sína í ljósinu.