Tvíburalogi

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Twin flame and the translation is 100% complete.
Other languages:

Sálin á sér karlkyns og kvenkyns hliðstæðu sem var getin úr sama hvíta eld-líkamanum sem er egglaga eldhjúpur ÉG ER-Nærverunnar.

Guð faðir og Guð móðir, Elóhím, skapaði tvíburalogapar úr sama hvíta eld-líkamanum í hjarta hinnar Miklu meginsólar. Innan þessa einstaka egglaga eld-hjúps, sem er Guð, þróa tvíburalogar guðlega eiginleika sína frá einu tímaskeiði til annars sem birtast í sammiðja hveli orsakalíkamans sem umlykur hinn hvíta eld-líkama.

Hinn hvíti eld-líkami skiptist í tvö sams konar hvel sem hvort um sig samanstendur af ÉG ER-nærverunni umlukin orsakalíkamanum. Annað þessara tvíburahvela er hlaðið andhverfum karllægum mótpól og hitt andhverfum kvenlegum mótpól hinnar guðlegu heildar, samt inniheldur hver guðleg frumeind innra með sér plús/mínus umskautun T'ai Chi og er tvíkynja. Ég ER-nærvera þeirra beggja sendir síðan sál tvíburalogans á vettvang.

Þessar sálir sem Elóhím skapaði í upphafi sameinast aftur að lokum. Þær endurfæðast í efnisheiminum til þess að uppfylla hina guðlegu ráðagerð sem fyrirbúin er tvíburalogum.

Sem guðlegar hliðstæðar búnar til úr sama hvíta elds-líkamanum deila tvíburalogar einstökum rafrænum frumdrögum sem enginn önnur mannvera mun nokkurn tíma hafa; sömuleiðis er kosmískt hlutskipti tvíburaloga einstakt og enginn getur uppfyllt það í þeirra stað.

Sjá einnig

Sálufélagi

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, Soul Mates and Twin Flames: The Spiritual Dimension of Love and Relationships.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, 1. kafli, “Twin Rays”.

Heimildir

Pearls of Wisdom, 32. bindi, nr. 37, 10 september, 1989.