Zeitoun

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Zeitoun and the translation is 100% complete.
Other languages:
Ljósmynd af birtingu Maríu móður yfir koptísku kirkjunni í Zeitoun í Kaíró

Frá apríl 1968 til ársbyrjunar 1971 söfnuðust þúsundir manna saman á hverju kvöldi fyrir utan koptísku kirkjuna í Zeitoun (hverfi í Kaíró í Egyptalandi, nálægt þeim stað þar sem heilaga fjölskyldan er sögð hafa dvalið eftir flóttann til Egyptalands undan ofsóknum Heródesar) til að verða vitni að birtingum hinnar blessuðu móður. Ólíkt öðrum birtingum Maríu, til dæmis í Fátima eða Lourdes, gat hver einasti maður í mannfjöldanum séð hana, óháð kynþætti eða trúarbrögðum.

Sjónarvottar sögðu að birtingar hennar yfir kirkjunni, sem stóðu yfir allt frá nokkrum mínútum upp í nokkra klukkutíma, hafi verið boðaðar með leiftrandi ljósum og komu stórra fugla sem líktust dúfum. Endrum og eins fylgdu Jesús og Jósef hinni blessuðu móður. Birtar ljósmyndir sem teknar voru á meðan á birtingunum stóð sýna verund móður Krists við hlið kirkjuhvelfingarinnar með ljómandi fugl svífandi yfir höfði sér.

Á meðan birtingarnar í Zeitoun stóðu yfir sögðust mörg hundruð manns hafa læknast fyrirvaralaust, og fregnir af lækningum og kraftaverkum héldu áfram að berast jafnvel eftir að birtingunum lauk.

Til frekari upplýsinga

Thomas F. Brady, „Visions of Virgin Reported in Cairo,“ New York Times, 5. maí 1968, bls. 71.

Fatima Prophecy: Days of Darkness, Promise of Light (Spádómur Fátímu: Myrkir dagar, ljóssfyrirheit) (Austin, Tex.: Association for the Understanding of Man (Félag til að skilja manninn), 1974), bls. 43–50.

Jerome Palmer, „The Virgin Mary Appears in Egypt (Jómfrú María birtist í Egyptalandi),“ Fate, ágúst 1971, bls. 60–70.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lost Teachings of Jesus 1: Missing Texts • Karma and Reincarnation, 4. kafli, lokaskýringar.