Messenger/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
No edit summary
Line 23: Line 23:
Spámaðurinn '''[[Special:MyLanguage/Moses|Móse]]''', boðberi [[Special:MyLanguage/I AM THAT I AM|ÉG ER SÁ SEM ÉG ER]], var kallaður til að frelsa Ísraelsmenn úr ánauð í Egyptalandi. Mósebók segir: „D<small>rottinn</small> talaði til Móse augliti til auglitis, eins og maður talar við vin sinn. Hann er nú hinn uppstigni meistari [[Special:MyLanguage/Lord Ling|drottinn Ling]].  
Spámaðurinn '''[[Special:MyLanguage/Moses|Móse]]''', boðberi [[Special:MyLanguage/I AM THAT I AM|ÉG ER SÁ SEM ÉG ER]], var kallaður til að frelsa Ísraelsmenn úr ánauð í Egyptalandi. Mósebók segir: „D<small>rottinn</small> talaði til Móse augliti til auglitis, eins og maður talar við vin sinn. Hann er nú hinn uppstigni meistari [[Special:MyLanguage/Lord Ling|drottinn Ling]].  


Koma Móse var spáð '''[[Ernon, Rai frá Suern]]''' fyrir 13.000 árum, boðberi Guðs á tímum [[Atlantis]]. Þegnar hans, Súernis-búar, gerðu uppreisn gegn aga hans og Ernon varaði við því að þeir þyrftu að bíða í um níutíu aldir eftir næsta boðabora sinum, „þeim sem mun heita Móse. Súernis endurholdguðust sem Ísraelsmenn, meðal niðja Abrahams.
Koma Móse var spáð '''[[Special:MyLanguage/Ernon, Raiof Suern|Ernon, Rai frá Súern]]''' fyrir 13.000 árum, boðberi Guðs á tímum [[Special:MyLanguage/Atlantis|Atlantis]]. Þegnar hans, Súernis-búar, gerðu uppreisn gegn aga hans og Ernon varaði við því að þeir þyrftu að bíða í um níutíu aldir eftir næsta boðabora sinum, „þeim sem mun heita Móse. Súernis endurholdguðust sem Ísraelsmenn meðal niðja Abrahams.


Ættfaðirinn '''[[Abraham]]''', „faðir margra þjóða,“ var kallaður vinur Guðs. D<small>rottinn</small>Guð kallaði Abraham úr [[Úr í Kaldea]] og lofaði honum: „Ég mun gera yður að mikilli þjóð. Abraham er nú uppstigni meistarinn El Morya.
Ættfaðirinn '''[[Special:MyLanguage/Abraham|Abraham]]''', „faðir margra þjóða,“ var kallaður vinur Guðs. D<small>rottinn</small>Guð kallaði Abraham úr [[Special:MyLanguage/Ur of the Chaldees|Úr í Kaldea]] og lofaði honum: „Ég mun gera yður að mikilli þjóð. Abraham er nú uppstigni meistarinn El Morya.


Abraham galt tíund til '''[[Melkísedeks]]''', konungs í Salem, prests hins æðsta Guðs. Melkísedek var boðberi Guðs sem lýst er í Hebreabréfinu sem „Þess er ekki getið hver faðir hans, móðir eða forfeður hans voru, hvenær hann fæddist og hvenær hann dó. Hann er líkur syni Guðs.“<ref>Hebr. 7:3.</ref>
Abraham galt tíund til '''[[Melkísedeks]]''', konungs í Salem, prests hins æðsta Guðs. Melkísedek var boðberi Guðs sem lýst er í Hebreabréfinu sem „Þess er ekki getið hver faðir hans, móðir eða forfeður hans voru, hvenær hann fæddist og hvenær hann dó. Hann er líkur syni Guðs.“<ref>Hebr. 7:3.</ref>

Revision as of 08:34, 26 June 2024

Guðspjallamaður. Sá sem fer á undan englunum og flytur fólki jarðarinnar fagnaðarerindið um Jesú Kristi og, á tilteknum tíma, hið eilífa fagnaðarerindi.[1] Helgivaldið smyr boðbera Stóra hvíta bræðralagsins sem postula þeirra (þá sem „sendir eru í trúboð“). Þeir flytja með fyrirlestrum (spádóma) uppstignu meistaranna vitnisburði og týndar kenningar Jesú Krists í krafti heilags anda til sæðis Krists, hinna týndu sauði úr húsi Ísraels, Matt. 10:6; 15:24.</ref>og til hverrar þjóðar. Boðberi er sá sem er þjálfaður af uppstignum meistara til að taka á móti orðum, hugtökum, kenningum og boðskap Hvíta bræðralagsins með ýmsum aðferðum; sá sem flytur lögmálið, spádómana og ívilnanir og blessanri Guðs til lýðs og aldar.

Boðberar í gegnum tíðina

Guð hefur alltaf haft boðbera sína. Eftirfarandi eru nokkur dæmi:

Mark L. Prophet, nú hinn uppstigni meistari Lanelló, var kallaður af El Morya árið 1958 til að stofna The Summit Lighthouse (Ljós-vitann á tindinum) og setja fram kenningar hinna uppstignu meistara fyrir vatnsberaöldina. Mark var einnig boðberi á fyrri æviskeiðum. Sem spámaðurinn Nói, fékk hann spádóminn um flóðið og áminnti og hvatti fólkið í meira en hundrað ár. Sem egypski faraóinn Iknaton, boðberi Atóns (sólguðsins), innleiddi hann eingyðistrú. Mark starfaði einnig sem boðberi bræðralagsins í hlutverki bandaríska lárviðarskáldsins Henry Wadsworth Longfellow.

Boðberarnir Guy W. Ballard|Guy og Edna Ballard, nú hinir uppstignu meistarar Godfre og Lótus, stofnuðu I AM Activity (ÉG ER-starfsemina) í upphafi 1930 undir stjórn Saint Germains. Þeir þjónuðu sem boðberar hans og fluttu fyrirmæli hinna uppstignu meistara um öll Bandaríkin. Á fimmtándu öld var Lótus uppi sem Jóhanna af Örk, boðberi Guðs sem flutti franska hernum leiðbeiningar Mikaels erkiengils og bjargaði þar með Frakklandi.

Mary Baker Eddy, sem stofnaði Christian Science movement (Kristnu vísindahreyfinguna) seint á 1800 laut leiðsögn Jesú, Móðir Maríu og Páls postula. Nú er uppstigni kvenmeistarinn Þeósósófía, hún gegnir stöðu gyðju viskunnar.

Boðberar Jesú Krists hafa meðal annars verið Páll postuli, Jóhannes hinn elskaði og heilög Teresa frá Avila. Páll postuli er nú hinn uppstigni meistari Hilaríon. Í síðustu holdtekju sinni var hann heilagur Hilaríon sem Jesús notaði sem starfstæki sitt til að lækna mannfjöldann. Jóhannes hinn elskaði, „lærisveinninn sem Jesús elskaði,“ fékk boðskap Opinberunarbókarinnar frá hinum uppstigna Jesú. Heilög Teresa frá Avila, sextándu aldar umbótasinni Karmelreglunnar á Spáni, talaði oft við Jesú. Hann sagði einu sinni við hana: "Ekki vanrækja að skrifa niður það sem ég segi ... ég skal gefa þér lifandi bók." Hún er nú uppstigni kvenmeistarinn Kristín.

Jesús Kristur var sjálfur boðberi. Á æviskeiði sínu í Galíleu flutti hann orð drottins Maitreya sem hann vísaði til sem „föður“. Hann hafði áður þjónað sem boðberi á æviskeiðum sínum sem spámaðurinn Josúa og spámaðurinn Elísa. Sem Elísa tók hann við möttli Elía spámanns.

Elía steig upp til Guðs í eldvagni. Eins og Malakí spáði sneri hann aftur til jarðar til að fara fyrir Jesú sem Jóhannes skírari. Þannig hefur hann bæði sem Elía og Jóhannes skírari þjónað sem boðberi Guðs.

Spámaðurinn Samúel, síðastur dómarara Ísraels tók við köllun sinni sem boðberi þegar hann var barn. Fyrir milligöngu Samúels smurði Guð Davíð sem konung Ísraels. Samúel er nú hinn uppstigni meistari Saint Germain.

Spámaðurinn Móse, boðberi ÉG ER SÁ SEM ÉG ER, var kallaður til að frelsa Ísraelsmenn úr ánauð í Egyptalandi. Mósebók segir: „Drottinn talaði til Móse augliti til auglitis, eins og maður talar við vin sinn. Hann er nú hinn uppstigni meistari drottinn Ling.

Koma Móse var spáð Ernon, Rai frá Súern fyrir 13.000 árum, boðberi Guðs á tímum Atlantis. Þegnar hans, Súernis-búar, gerðu uppreisn gegn aga hans og Ernon varaði við því að þeir þyrftu að bíða í um níutíu aldir eftir næsta boðabora sinum, „þeim sem mun heita Móse. Súernis endurholdguðust sem Ísraelsmenn meðal niðja Abrahams.

Ættfaðirinn Abraham, „faðir margra þjóða,“ var kallaður vinur Guðs. DrottinnGuð kallaði Abraham úr Úr í Kaldea og lofaði honum: „Ég mun gera yður að mikilli þjóð. Abraham er nú uppstigni meistarinn El Morya.

Abraham galt tíund til Melkísedeks, konungs í Salem, prests hins æðsta Guðs. Melkísedek var boðberi Guðs sem lýst er í Hebreabréfinu sem „Þess er ekki getið hver faðir hans, móðir eða forfeður hans voru, hvenær hann fæddist og hvenær hann dó. Hann er líkur syni Guðs.“[2]

Ættfaðirinn Enok, sem „gekk með Guði“, var boðberi Sanat Kumara, hins aldna, sem talað er um í Daníelsbók. Í Enoksbók skráir Enok opinberanir Sanat Kumara um hið sanna eðli og verk hinna föllnu engla.

Prédikarinn, sonur Davíðs, konungs í Jerúsalem var í ætterni boðbera Guðs. Hann var sál frá Venus sem endurholdgaðist til að kenna mannkyninu.

Drottinn Gátama Búdda, annar boðberi Sanat Kumara, stofnaði búddhadóm á sjöttu öld f.Kr. Í fjörutíu og fimm ár prédikaði hann víðsvegar um Indland og breiddi út kenningu sína um hin fjógur göfugu sannindi, áttföldu leiðina og milliveginn.

Saraþústra, boðberi Ahura Mazda, stofnaði saraþústratrú í Persíu til forna.

Hermes Trismegistus, fornegypskur spekingur, var kallaður „ritari guðanna. Hann er nú hinn uppstigni meistari Guð Merkúr, sem El Morya hefur kallað „dæmigerðan boðbera guðanna“.

Fyrsti boðberi Guðs sem þú þekkir er þitt eigið heilaga Krists-sjálf. Hið heilaga Krists-sjálf færir þér boðskap hinnar voldugu ÉG ER-nærveru – ef þú hefur eyru til að heyra og hjarta sem hneigist að Sannleikanum.

Nicholas Roerich' og Helena Roerich voru boðberar El Morya snemma á tuttugustu öld.

Til frekari upplýsinga

El Morya, The Chela and the Path: Keys to Soul Mastery in the Aquarian Age, bls. 115–22.

Jesus and Kuthumi, Prayer and Meditation, bls. 246–53.

Sjá einnig

Ritari

Fyrirlestur

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Helgidagatal, desember, 1993.

Elizabeth Clare Prophet, 3. júlí, 1972; 8. maí, 1974.

  1. Opinb. 14:6.
  2. Hebr. 7:3.