Chohan-meistari

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:33, 30 March 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Drottinn eða meistari; höfðingi. Hver geislanna sjö hefur chohan-meistara sem einbeitir sér að Krists-vitund geislans. Hann er svo sannarlega lögmál geislans sem stjórnar réttlátri notkun hans í manninum. Eftir að hafa gætt lögmáli geislans lífi og sál og framfylgt því í fjölmörgum holdtekjum og tekið vígslu bæði fyrir og eftir uppstigninguna, skipar Maha Chohan hinn tilnefnda í embætti chohan-meistara. Maha Chohan, „hinn mikli drottnari,“ sem er sjálfur fulltrúi heilags anda á öllum geislum.

Athafnasvið chohan-meistaranna

Chohan-meistararnir eru valdir úr hópi hæfustu uppstiginna mannvera sem hafa risið upp úr skólastofu jarðarinnar. Herskarar engla og náttúruanda aðstoða þá ásamt uppstignum bræðrum og systrum við að inna af hendi ráðagerð Guðs um birtingu geislanna sjö á sem fullkomnasta hátt sem unnt er fyrir mannkyn jarðar. Chohan-meistararnir hlýða alltaf kosmískum lögum; samt er þeim gefið ákveðið svigrúm í samræmi við einstöku þróun þeirra, getu og hæfileika til að beina mannkyninu á sem færastan hátt og veita ástríka aðstoð og andlega leiðsögn eftir þörfum hverju sinni.

Chohan-meistararnir sjö

Fyrsti geisli El Morya Musteri góðviljans, Athvarf guðsviljans, Darjeeling, Indlandi
Annar geisli Lantó Royal Teton athvarfið, Grand Teton, Jackson Hole, Wyoming, Bandaríkjunum
Þriðji geisli Páll frá Feneyjum Frelsishöllin, suðurhluta Frakklands með þrígreinda logann jarðtengdan í Washington minnismerkinu, Washingtonborg.
Fjórði geislinn Serapis Bey Uppstigningarmusterið og Athvarfið í Lúxor, Egyptalandi
Fimmti geislinn Hilaríon (Páll postuli) Sannleiksmusterið, Krít
Sjötti geislinn Nada Arabíu-athvarfið, Saudi Arabíu
Sjöundi geislinn Saint Germain Royal Teton athvarfið, Grand Teton, Wyoming; Táknahellirinn, Table Mountain, Wyoming. Saint Germain vinnur einnig út frá viðtökustöðum Stjórnandans miklaLjóshellinum í Indlandi og á Óðalsetrinu í Rakoczy í Transylvaníu þar sem Saint Germain ríkir sem yfirstjórnandi og höfuðprestur.

Skilgreiningar og uppruni

„Drottinn eða meistari. Mikill fullnumi. Vígsluþegi sem hefur tekið fleiri vígslur en þær fimm helstu vígslur sem gera manninn að „meistara viskunnar““ (Alice A. Bailey, A Treatise on Cosmic Fire, bls. 66, n. 24).

“Hugtak frá Rajput sem indverskir rithöfundar nota til að gefa til kynna háa andlega stöðu” (Christmas Humphreys, A Popular Dictionary of Buddhism, bls. 57).

„Höfðingi, Cho-Khan, „Rock of Ages““ („The Mahatma Letters to A. P. Sinnett from the Mahatmas M. & K. H.“, index, bls. 9).

„Chohan, Tíbeskt? [Drottnari]. Sjö voldugar mannverur sem, eftir að hafa náð sjöttu vígsluna, hafa mátt innra með sér til að beina til sín geislastraumum eða eiginleikum vitundar Logos“ (H. P. Blavatsky, The Secret Doctrine, 5. Adyar útg., 6:452).

Chohan gæti tengst hinu tíbeska orði chos (borið fram cho), sem merkir dharma, trúarkenningum eða trúarbrögðum, sérstaklega kenningum Búddha. Í almennum skilningi nær merking chos yfir öll fyrirbæri, efni og þekkingu á veraldlegum og andlegum fyrirbærum. Tíbeska orðið jo-bo (borið fram chō) merkir drottnari eða meistari, Búddha eða ímynd Búddha. Mongólska orðið khan eða qan (borið fram hahn) merkir einnig drottnari, höfðingi, keisari eða konungur. Tíbeska orðið chos-mkhan (borið fram chĭ-kĕn eða chō-kĕn) merkir sá sem iðkar eða er vel að sér í dharma.

Sjá einnig

Háskóli andans

Til frekari upplýsingar

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, 4. kafli

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, bls. 256.

Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 29, 19. júní 1988. 1. Neðanmálsgrein.