Viskuperlur

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:28, 27 April 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Viskuperlur eru vikuleg erindi með leiðbeiningum sem boðberar uppstignu meistaranna Mark og Elizabeth Prophet fluttu fyrir munn þeirra handa nemum hinna helgu véa um allan heim.

Síðan 1958 hefur Darjeelings-ráðið í Stóra hvíta bræðralaginu staðið á bak við útgáfu kenninga þeirra á þessu sniði í gegnum boðberana Mark og Elizabeth Prophet. Þessi erindi eru náin, frá hjarta til hjarta, milli gúrú-meistarans og chela-nemans. Ljós-vitinn á tindinum hefur birt Viskuperlurnar frá 1958. Þær fela í sér grunnatriði og þróaðri kenningar um lögmál alheimsins ásamt fræðslu í hagnýtri notkun andlegra sanninda til lausnar á vandmálum einstaklingsins sem og heimsins.

Hvernig á að lesa Perlurnar

Ætlast er til að Perlur viskunnar séu lesnar daglega alla sjö daga vikunnar sem þær berast. Þegar þú neytir þennan „líkama“ og „blóð“ þessa Alheims-Krists Stóra hvíta bræðralagsins, verður þú sá hluti af þinni eigin æðri vitund sem er fangaður í kenningum uppstignu meistaranna fyrir þá viku. Og það er hið tileinkaða Orð og verk Drottins, daglegt brauð þitt og heilagt samfélag sem er kjarninn til að öðlast guðlega sjálfs-færni sem nær hámarki í uppstigningunni í ljósinu við lok árangursríks lífs lifað til dýrðar Guðs í þjónustu við alla.

Uppstigningin er aðlögun sálarinnar að alheimsljósinu. Sérhver visdómsperla sem hollvinurinn hefur tileinkað sér er stigagangur í þessari ævi pýramídabyggingar við líflega steina. Megir þú eta hið lifandi Orð og njóta þeirrar sælu að verða heill! Og megi verk Drottins í gegnum þig blessa og lækna margar sálir!

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Archangel Gabriel, Mysteries of the Holy Grail.

Pearls of Wisdom, 32. bindi, nr. 1, 1. janúar, 1989.