Ljósgyðjan

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:42, 29 October 2025 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "== Sjá einnig ==")

„Amerissis“ er öflug vera sem gefur eiginleikum ljóssins sálarfyllingu, þaðan kemur nafnið „Ljósgyðja“. Hugtakið guð eða gyðja vísar til þeirrar sem eru koamíakar verur og veita vitund Guðs sálarfyllingu og vísar til stöðu hans eða hennar í hinu andlega helgiveldi og geisla hans eða hennar.

Ljósgyðjan hefur hollustu við ljós Guðs, jafnvel við ljós Guðs innra með þér. Hún geymir þetta ljós fyrir okkur í hjarta hverrar einustu frumeindar, frumu og rafeinda. Hún útskýrði eitt sinn: „Ég er kölluð, af náð Guðs, ljósgyðjan einfaldlega vegna þess að ég hef sýnt ljósinu hollustu svo lengi.“Cite error: Closing </ref> missing for <ref> tag

Þjónusta hennar nú á dögum

Amerissis segir:

Ég gef ykkur ljós mitt og orsakalíkama minn, og hersveitir mínar eru tilbúnar til að þjóna. Minnist nafns míns — Amerissis, Ljósgyðja. Og munið að kalla á mig og kalla fram tilskipanir ljóssins.

Ljós er því alkemísk umbreytingarlausn að lækningu þjóðanna, og það er einnig lausnin að áframhaldandi hlutlægni ykkar þegar þið lærið merkingu hins hvíta eldkross.

Ég er ljós-móðir og ég er með þér. Ég hef staðið í þínum sporum. Ég hef séð drottin Sanat Kumara eyða myrkrinu. Ég hef séð sigur á sigur ofan. Við þráum líka niðurlögum myrkursins. Það hefur verið of langvarandi. En tímarás þess er ákvörðuð, ástkærir mínir, af þeim sem eru í holdinu.... Frjáls vilji vegur gríðarlega í ytri alheimunum.[1]

Í fyrirlestri sínum hefur Ljósgyðjan ítrekað varað okkur við því að vera stöðugt á varðbergi gagnvart þeim sem vilja nota veikleika okkar til að koma okkur í klandur á hinni andlegu braut. Hún hefur opinberað að hún vinni náið með Jesú. Hún og Jesús senda oft ljós til deyjandi og hjálpa þeim að takast á við ótta við dauðann. Þegar einhver er að falla frá getið þið ákallað hana. „Ég mun nota ykkur sem miðpunkt í formsheiminum,“ sagði hún, „til að útvíkka ljósið til þeirra, sem eru vonarljós, ljós trúarinnar og ljós kærleikans“ til allra sem eru að fara yfir móðuna miklu yfir í hærri áttundir.[2]

Hugleiðsla til að auka ljósið

Ljósgyðjan hefur gefið okkur hugleiðslu til að auka ljósið innra með okkur. Hún sagði:

Það er gott að koma sér upp hugleiðslu um ljós þar sem þið sjáið ljósdepla um allan líkamann. Ímyndið ykkur risastórt jólatré með kerti á hverri smágrein svo að milljón kerti geti brennt á lífstrénu ykkar til að lýsa upp veginn fyrir milljónir. Munið að á hverjum stað í hverri frumu líkama ykkar er kjarni í frumeindinni og það er mikil miðlæg sól í hverri frumu. Þetta eru ljósdeplar. Þetta eru, ef svo má að orði komast, birtingarmyndir hinnar miklu miðlægu sólar á smásjárstigi.

Lífleg heilsa í líkamanum hjálpar til við að halda hringrás ljóssins. Þannig getur maður notið líflegs hugar sem er kvikur og vakandi og geðlíkama sem er sannarlega samsilltur lögmáli Guðs í gleði Drottins.[3]

Hvernig á að sigrast á veikleika

Amerissis hefur einnig kennt okkur verklega um hvernig á að sigrast á veikleikum persónuleikans. Hún útskýrði að hvert og eitt okkar lendir í þremur stórum, endurteknum prófraunum í lífi okkar. Hún sagði:

Flestir jarðarbúar, eins og við höfum reiknað út í könnunum sem englar okkar hafa gert, hafa þrjá hnúta í meðvitund sinni sem heldur aftur af þeim, draga þá til baka. Þessir hnútar eru svo augljósir, rétt fyrir neðan nefið á þeim, að þeir sjá þá ekki árum saman. Sumir hverfa af skjá lífsins í þeirri breytingu sem kallast dauði án þess að hafa áttað sig á því að þeir misstu af því augljósasta — því augljósasta sem þeir komu til að færa til betri vegar.

Sjálfsskoðun er skynsamleg þegar hún fer ekki út í öfgar. Leitið því til þeirra sérfræðinga sem geta aðstoðað ykkur. Leitið einnig ráða hjá kærustu vinum ykkar, ástvinum og fjölskyldu. Því þeir gætu einnig sagt þér hvað þeir kunna að hafa orðið áskynja....

Hugsið þá um þrjá sterkustu hliðar lífsstraums ykkar þar sem þið sýnið mestan persónuleikastyrk — heiður, göfuglyndi, stöðugleika og fastmótun. Takið eftir þessu, því flestir hafa þrjú atriði þar sem þeir skara fram úr og skara fram úr stöðugt....

Þið ættuð ávallt að hafa þrjú atriði til örvunar og ná árangri í því sem þið eruð að vinna að og þrjá persónuleikaþætti sem þið viljið kasta í logann. Ef þessi atriði eru ávallt með ykkur, munuð þið taka stöðugum framförum. Þið munuð yfirstíga takmarkanir ykkar margfalt. Og að lokum, þegar þið komið að hliðinu, munt þið komast að því að þið hafið staðist svo margar prófraunir að þið hafið jafnað karma ykkar og eruð reiðubúin að stíga upp til himins í einu athvarfa hinna uppstignu meistara.[4]

Athvörf

Aðalgrein: Helgidómur dýrðarinnar

Amerissis notar athvarf Ljósdrottningar uppi yfir Messína á eyjunni Sikiley, athvarf Hreinleikagyðjunnar uppi yfir Madagaskar og sína eigin miðstöð í Helgidómi Dýrðarinnar í Andesfjöllum í Suður-Ameríku sem jarðtengingu fyrir þrefalda dreifingu ljóssins um allan heim, sérstaklega í Evrópu, Asíu og Afríku.

Sjá einnig

Sources

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, s.v. “Amerissis.”

  1. Gyðja ljóssins, 20. janúar 1980.
  2. Goddess of Light, 16. október 1966.
  3. Goddess of Light, “Be Aware! Be Vigilant!” (Goddess of Light, „Verið meðvituð! Verið vakandi!“) Pearls of Wisdom, 32. bindi, nr. 54, 10. nóvember 1989., tilvitnun í Elizabeth Clare Prophet, 28. júní 1996.
  4. Gyðja ljóssins, 2. júlí 1995.