K-17
K-17 er dulnefni fyrir uppstigna meistarann sem stýrir „Leyniþjónustu alheimsins“. Aðilar hennar tigna hið Alsjáandi auga Guðs. Þeir nota guðlega sýn sína til að vara borgara alheimsins við ógnum við öryggi hins einstaklingsbundna Guðs-loga — ógnum við líf og frelsi, ógnum við stjórnvöld heimsins og fjölskylduna sem grunneiningu vatnsberasamfélagsins.
Bæði K-17 og systir hans gátu viðhaldið lífi í efnislegum líkama sínum í meira en þrjár aldir fyrir uppstigningu sína á fjórða áratug síðustu aldar. Þau héldu áfram þroskaferli sínum og þjónustu við mannkynið og reka nú glæsihýsi í París og einbeita sér að þjálfun óuppstiginna chela-nema í öðrum heimshlutum.
K-17 heimsækir oft skrifstofur bandarísku ríkisstjórnarinnar í eigin persónu og vinnur náið með starfsmönnum FBI. Hann þekkir Kremlverja jafn vel, þótt þeir viti ekki hver hann raunverulega er.
Starf hinnar Kosmísku leyniþjónustu
Starfsmenn Leyniþjónustu alheimsins eru verndarar frelsisins í Bandaríkjunum og hjá öllum þjóðum jarðar. Vegna eðlis þjónustu sinnar eru K-17 og samstarfsmenn hans mjög nálægt hinni efnislegu áttundarvídd. Þeir birtast oft í efnislegri mynd sem gæslumenn réttra verka í miðri ringulreið og kreppum þegar þeir aðstoða hinar ýmsu öryggisstofnanir þjóða heims. Stundum starfa þeir í raun í leynum og skipa sér í raðir þeirra samtaka sem þeir vilja gegnumlýsa.
K-17 útskýrir að þar sem liðsveitir hans eru þeir félagsmenn helgiveldisins sem eru næst hinnni efnislegu áttundarvídd og efnislegri orkutíðni hennar hafa þeir helgað sig köllun sinni.... Það hefur verið sagt um mig að ég birtist oftar í efnislíkama í sölum stjórnvalda og meðal leiðtoga þjóða en nokkur annar uppstiginn meistari. Þetta er vegna þess að liðsveitirnar í Leyniþjónustu alheimsins hafa fengið það verkefni að starfa svo mikilli námund við mannkynið að menn finna raunverulega fyrir nærveru okkar áþreifanlega, og þannig á hættutímum er ótti þeirra sefaður vegna þess að þeir finna fyrir nærveru þeirrar himnesku hjálpar sem alltaf er í boði þegar leyniþjónustumenn helga sér þjónustu við heiðurslogannn.“[1]
K-17 notar verndandi kraftsvið sem kallast „hringur sem hleypir engu í gegn“, sem er í raun hringur úr hvítum eldi sem getur verið í litbrigðum hinna sjö geisla eftir því sem þörf krefur. Hann dregur upp þennan hring af lifandi loga í kringum einstaklinga og staði til að vernda og innsigla auðkenni og kraftsvið þeirra sem helga sér þjónustu við ljósið.
Að starfa með K-17
Árið 1973 lýsti K-17 starfi liðsveita sinna og hvernig við getum hjálpað þeim. Hann sagði:
Liðsveitir mínar eru umboðsmenn Alheims-Krists og þær eru alltaf á varðbergi gagnvart þeim birtingarmyndum sem byggja á undirróðri gegn Kristi og vaxandi búddhískri vitund mannkynsins.... Liðsveitir mínar hafa tölvur sem skrá alls kyns upplýsingar um alls kyns fólk því að við verðum að vera reiðubúin þar sem við þjónum með Skrásetjurunum að veita hverjum uppstignum meistara hvenær sem er það sem þið mynduð kalla skjöl um lífsstraum.
Uppstignir meistarar nota þessar upplýsingar til að ákvarða hæfni einstaklings til að gegna tiltekinni stöðu sem þeir myndu úthluta honum.
Við höfum laus störf í röðum okkar fyrir þá sem vilja taka þátt, með því að nota Alsjáandi auga Guðs fyrir tilstilli Syklópeu, við að vekja athygli helgiveldisins á einstaklingum og aðstæðum, samtökum og atburðum sem samræmast ekki lögmálinu og eru ... ógn við framgang ljóssins á plánetunni. Þið vitið að Guð er alvitur. En alviska Guðs birtist í gegnum sjálfsvitund hans í manninum. Guð notar hendur ykkar og fætur. Hann notar einnig augu ykkar. Og því er það ekki óviðeigandi fyrir þá sem eru í efnislíkama að vekja athygli helgiveldisins á aðstæðum sem eru í uppsiglingu og á teikniborðunum sem þurfa á innsigli hins hvíta elds að halda — hinum ógegndræpa hringi.
Ég vil einnig kynna ykkur þá staðreynd að í þjónustu ykkar með liðsveitum K-17 getið þið klæðst ósýnileikahjúpinum. Ósýnileikahjúpurinn er kraftsvið sem getur í raun gert ykkur ósýnileg þegar þið eruð á viðsjárverðum slóðum og á alfaraleið í þjónustu Bræðralagsins. En ég bið ykkur að muna þegar þið óskið eftir því að vera sýnileg ... að biðja Krists-sjálf ykkar um að svipta af ykkur ósýnileikahjúpinum....
Það eru svo sannarlega tímar, eins og þið munuð læra af liðsveitum mínum, þegar það er mikilvægt að fara huldu höfði. Þegar þið áttið ykkur á því að þið eruð í herbúðum óvinarins og eruð þar að safna upplýsingum og læra það sem þið getið lært í þágu ljóssins, þá eruð þið sveipuð hjúpi ósýnileikans og sjálf samviska ykkar og sál segir ykkur að þögn sé gulls ígildi, að varfærni sé betri hliðin á hugrekki.[2]
Það eru margir í holdinu sem þjóna með Leyniþjónustu alheimsins. Þetta er vegna þess að margir uppstignir meistarar sem þjóna í ráðum Stóra hvíta bræðralagsins hafa ekki verið í jarðneskum líkama nýlega. Þegar þeir eru uppstignir eru þeir ekki lengur í sambandi við heimsástandið og samfélög samtímans í sama mæli og þeir voru þegar þeir voru í holdinu á jörðinni. Þótt þeir hafi mátt til að stilla sig inn á mannkynið, verja þeir ekki meiri orku en nauðsynlegt er til að inna af hendi þjónustu sína.
Sú grein Leyniþjónustu Alheimsins sem skipuð er óuppstignum mönnum safnar upplýsingum um tiltekin mál, skrifar skýrslur um ástandið í heiminum og gefur skoðanir á því hvað gera ætti í ákveðnum málum. Skýrslum hinna ýmsu umboðsmanna er skellt saman og skoðaðar. Meistararnir bera saman eigin skoðanir við tillögur hinna óuppstignu umboðsmanna. Í flestum tilfellum senda þeir niðurstöðurnar í hnitmiðuðu formi til Karmíska ráðsins. Lokaaðgerðir Bræðralagsins byggjast þá að einhverju leyti á þeim upplýsingum sem jarðneskir menn safna.
Lanelló og K-17
Árið 1977 ljóstraði Lanelló því upp að hann hefði unnið með K-17 í margar aldir áður en hann varð uppstiginn meistari. Þessir tveir meistarar halda áfram að vinna saman og árið 1996 skiluðu þeir skýrslu um heimsmyndina þar sem þeir báðu nema um að ákalla Syklópeu til að afhjúpa og koma í veg fyrir aðför að bandarísku þjóðinni.
Þið getið sótt um að taka þátt í Leyniþjónustu alheimsins, og ein leið til að gera það er að skrifa Lanelló og K-17 bréf. Þið getið skrifað þeim á hverju kvöldi og brennt bréfið. Englarnir bera bréfið til Royal Teton athvarfsins, þar sem Karma-drottnarnir hittast, og þið getið gefið alls kyns upplýsingar sem þið kunnið að hafa vitneskju um sem þarf að bregðast við. Þið getið sagt hvert vandamálið er og síðan boðið fram hvers konar þjónustu og farið með viðeigandi möntrufyrirmæli eða viett annars konar þjónustu sem þið viljið leggja af mörkum til að laga þetta ástand í samfélaginu eða hvað þið gætuð vitað um sem er mjög alvarleg ógn við stjórnarfar þessarar þjóðar eða annarra þjóða.
K-17 og liðsveitirnar undir hans stjórn ættu að vera kallaðar til að afhjúpa, með krafti hins Alsjáandi auga, þau máttarvöld og samsæri sem myndu grafa undan ráðagerð Saint Germains um Guð-ræði á gullöldinni. Logi hans er blágrænn og hvítur. Hann er oft einfaldlega kallaður „Vinur“.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “K-17.”
Pearls of Wisdom, 26. bindi, nr. 6, 2. febrúar 2021.