Launhelgar
Frá því að karl og kona voru rekin úr Aldingarðinum Eden (launhelgum drottins Maitreya) vegna misnotkunar á eldinum helga og rangrar beitingar hins frjálsa vilja hefur Stóra hvíta bræðralagið haldið úti launhelgum eða athvörfum. Þetta hefur þjónað sem þekkingasetur á hinum helga eldi sem er tryggður tvíburalogapörum þegar þau hafa sýnt þann aga sem áskilinn er til að halda sér á veginum sem liggur til lífsins trés.
Eftir syndafallið (stigningu þverlyndra sálna niður á lægri vitundarsvið) styrkti Stóra hvíta bræðralagið launhelgar á Lemúríu og Atlantis þar sem æðri andlegur sannleikur var kenndur þeim sem vildu stunda agaþjálfun fullnumanna. Sangha Búddha, samfélag essena í Kúmran og skóli Pýþagórasar í Krótón voru meðal nýrri launhelga. Aðrir skólar voru staðsettir í Himalajafjöllum, Austurlöndum fjær og Egyptalandi sem og í Evrópu og Suður-Ameríku.
Í Evrópu á miðöldum voru gildin launhelgar. Dómkirkjurnar sem þeir byggðu endurspegluðu leyndardóma innri lögmála sálarinnar í byggingarlisthönnun langt umfram skilning miðaldamannsins. Handverksmenn voru færir í að vekja til vitundar þá sem fóru inn í þessar dómkirkjur með því að byggja utan um þá mannvirki sem endurspegluðu innri rúmfræði guðdómleikans sem er Guð (geometry of divinity that is God). Mörg leyndarmála musteris Salómons og Pýramídans mikla koma fram í kenningum þessara launhelga. Riddarasögur Arthúrs konungs og riddara hringborðans eru einnig frásagnir eins af launhelgum Bræðralagsins.
Þessar launhelgar voru eyðilagðar eða leystar upp. Og hvar sem þetta gerðist drógu hinir uppstignu meistarar, sem styrktu þá, loga sína og helgiskrín til sín aftur á ljósvakasviðið. Hér eru lærisveinar þeirra þjálfaðir á milli endurfæðinga og í fíngerðari líkömum sínum (í svefni eða í uppljómuðu alsæluástandi, samadhi), til þess að þeir geti öðlast þá guðdómlegu sjálfsþekkingu launhelganna enn á ný sem Saint Germain kom á fót á þessari öld sem hefur ekki staðið mannkyninu til boða á efnissviðinu um aldir.
Árið 1984 endurreisti drottinn Maitreya launhelgar sínar á Royal Teton Ranch setrinu í suðvestur Montana.
Þekktar launhelgar
Skóli Pýþagórasar í Króton
Sangha Gátama Búddha
Samfélag Essena í Kúmran
Sjá einnig
Heimildir
Elizabeth Clare Prophet, 31. desember, 1976.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.